Forstjóri Arnarlax segir fyrirtækið rannsaka hvernig flothringur úr sjókví losnaði og rak á land. Samkvæmt meðfylgjandi frétt veit forstjórinn ekki hvernig né hvenær flothringurinn losnaði.
Svona hringur er engin smásmíði, tugir metrar að þvermáli. Arnarlax týndi honum samt.
Við vitum að fyrirtækið týnir reglulega miklum fjölda eldislaxa en þetta er alveg ný viðbót.
Ekki er þetta nú traustvekjandi rekstur.
Forstjóri Arnarlax segir fyrirtækið rannsaka hvernig flothringur úr sjókví losnaði og rak á land. Hringurinn var í geymslubóli og rak á land innarlega í Patreksfirði í vikunni. Ekki er ljóst hvernig né hvenær hann losnaði. …
Málið er einnig á borði Matvælastofnunar.
„Við erum að hefja rannsókn, erum byrjuð að skoða hvað gerðist þarna og hvort við eigum að bregðast við eða hvernig við bregðumst við,“ segir Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar. …
Bjørn Hembre, forstjóri Arnarlax, segir að hringurinn hafi verið á geymslusvæði án nets, þar sem til stóð að hann yrði fram að vori. Málið hafi verið leyst og ekkert tjón hlotist. …
Hrönn segir að með auknum stjórnsýsluúrræðum til MAST hefði mögulega verið hægt að koma í veg fyrir að kvíin færi á flakk. Hún viti ekki til þess að slíkt hafi gerst áður.
„Það má benda á að í nýju frumvarpi um sjókvíaeldi, um lagareldi, þar eru auknar heimildir stofnunar lagðar til að bregðast við því að búnaður sé fjarlægður þegar búið er að slátra upp út. Þá hefðum við kannski haft einhver stjórnsýsluúrræði til að bregðast við þarna. Það hefði alveg verið möguleiki að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta.“
Í drögum atvinnuvegaráðuneytisins að frumvarpi til laga um lagareldi segir að fyrirtæki skuli fjarlægja allan búnað sem ekki er í notkun að kröfu Matvælastofnunar. …