Þrátt fyrir að aldrei hafi verið meira magn af eldislaxi í sjókvíunum en í vetur eru Arnarlax og Arctic Fish að segja upp fólki, loka starfsstöðvum og lækka laun.

Það er sorglegt að fólkið fyrir vestan hafi ekki áttað sig fyrr. Þetta var allt svo fyrirsjáanlegt og við margbúin að benda á að þróunin í Noregi hefur verið nákvæmlega þessi: Störfin færri en var lofað og fjármagnið afar takmarkað orðið eftir í sjávarbyggðunum.

Þessi saga hefur öll verið skrifuð áður.

RÚV rædi við Finnboga Sveinbjörnsson, formann Verkalýðsfélags Vestfirðinga

Verkalýðsfélag Vestfirðinga harmar ákvörðun fiskeldisfyrirtækjanna Arctic Fish og Arnarlax að lækka laun starfsfólks. Í yfirlýsingu félagsins eru fyrirtækin hvött til þess að finna aðrar leiðir til að hagræða í rekstri.

Breytingin nær til rúmlega fimmtíu starfsmanna Arnarlax og á fjórða tug hjá Arctic Fish í sjódeildum fyrirtækjanna. Finnbogi segir þetta talsverða lækkun. „Þetta er í kringum 20% hjá Arnarlaxi, gæti verið eitthvað lægra þar sem þeir eru að stytta vinnuvikuna á móti. Þetta er ekki eins mikil breyting hjá Arctic Fish.“

Hann segir þetta verðmæt störf sem hafi skilað starfsfólki góðum launum í vasann. Með því að lækka launin séu fyrirtækin að senda þau skilaboð til starfsmanna að þeir séu ekki eins verðmætir og þeir hafi talið sig vera. Hann segir mikla yfirvinnu hafa tíðkast í þessum störfum og fyrirtækin þurfi að vera reiðubúin að borga vel fyrir það.

Hann segir ekkert í rekstri félaganna benda til þess að þetta sé nauðsynleg aðgerð.

„Fyrirtæki gera þetta oft ef þau eru að fara í gjaldþrot. Ég hef ekki heyrt það að laxeldisfyrirtæki á Íslandi séu á leiðinni í gjaldþrot. Þau ganga hérna að auðlindum Íslands og nýtingu fjarðanna. Þetta hefur verið gert í sátt og samvinnu við samfélögin hér. Þetta er okkar stóriðja, Vestfirðinga. Það er slæmt að fyrirtækin velji þessa leið til að fara inn í framtíðina með þessa flottu starfsgrein,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga.