Talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Jón Kaldal, og þingmaður Viðreisnar, Ingvar Þóroddson, ræddu frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra við Gunnu Dís og Frey Eyjólfsson í morgunúrvarpinu á Rás 2 milli 7.30 og átta í morgun.
Þar var tekist á af festu en kurteisi. Ingvar lofar að frumvarpsdrögin verði tekin til þéttrar meðferðar áður en frumvarpið verður lagt fram.
Hlekkur á umræðurnar í Morgunútvarpinu: Umræðurnar hefjast þegar um 32 mínútur eru liðnar af útsendingunni, 7:30 mínútum eftir fréttayfirlitið.
Myndin sýnir sjókví sem rak á land í Patreksfirði í gær. Eigandinn, Arnarlax, vissi ekki að hún var týnd fyrr en lögreglan hafði samband.
Lýsing RÚV á umfjölluninni í Morgunútvarpinu:
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, setti í samráðsgátt drög að frumvarpi um lagareldi, sem nær til hvers kyns fiskeldis á sjó og landi. Yfir 900 umsagnir birtust í samráðsgátt. Andstæðingar opins sjókvíaeldis telja drögin ganga alltof skammt í að verja villta laxastofna og óttast að verið sé festa greinina í sessi með kvótasetningu en því hafnar ráðherra. Á Íslandi hefur ágreiningurinn þó fyrst og fremst snúist um opið sjókvíaeldi á frjóum laxi. Gagnrýnendur telja að sú aðferð feli í sér of mikla áhættu fyrir villta laxastofna, meðal annars vegna stroks og erfðablöndunar, á meðan stuðningsmenn segja hana vera raunhæfa leið til verðmætasköpunar, að því gefnu að eftirlit og stýring sé nægjanleg. Til að ræða þessi mál komu til okkar Jón Kaldal frá Icelandic wildlife fund og Ingvar Þórodsson frá atvinnuveganefnd.