Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra gerði ekki gott mót í Kastljósi í kvöld í umræðum um drögin að frumvarpi um lagareldi.

Listinn er langur sem þarf að leiðrétta. Furðulegt var meðal annars að heyra hana fullyrða um framfarir í vernd náttúrunni og villtra laxastofna. Af hverju heldur hún að gjörsamlega öll náttúruverndarsamtök séu sjóðandi ill yfir þessum drögum? Afneitunin gagnvart þeirri stöðu var átakanleg.

Þá var merkilegt að heyra ráðherrann bera sig illa undan aðkomu „erlendra stórfyrirtækja“ að umsagnarferli um drögin. Hún hlýtur þó að átta sig á því að sjókvíaeldisfyrirtækin sem hér starfa eru einmitt í meirihlutaeigu erlendra stórfyrirtækja, sem eru skráð í norsku kauphöllinni, og reka hér geysilega harða og dýra hagsmunagæslu með sorglega mikil ítök í stjórnkerfinu.

Það voru þó ekki „óeðlilegu afskiptin“ sem henni finnst vera af vinnu við íslenska lagasetningu.

Það sem henni finnst vera óeðlilegt er að fólk og fyrirtæki í öðrum löndum vilja leggja hér lið íslenskum náttúruverndarsamtökum sem eru að reyna að forða því að hún og félagar hennar skaði umhverfi og lífríki Íslands með óafturkræfum hætti.

Ráðherrann gróf sér hreint ótrúlega djúpa holu í Kastljósi í kvöld.