Arctic Fish lokaði starfstöð sinni á Þingeyri við Dýrafjörð í fyrra og stórlækkar nú laun starfsfólks.

Þessi fyrtæki hafa alltaf hag hluthafanna fyrst og síðast í huga. Ekki starfsmanna og alveg örugglega ekki byggðarlaganna þar sem þau starfa. Sérhagsmunir fyrirtækjanna er það sem öll starfssemin snýst um.

Og nú er Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra komin gallhörð með þeim í lið. Gegn hagsmunum alls almennings, náttúru og lífríki Íslands og velferð veslings eldislaxanna sem sjókvíaeldisfyrirtækin níðast á í gróðaskyni.

Vísir fjallað um launalækkunaratlögu Arnarlax og Arctic Fish:

… Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga, segir lækkunina nema allt að tuttugu prósentum hjá Arnarlaxi. Um mun minni lækkun sé að ræða hjá Arctic fish. Hann hvetur fyrirtækin til að leita annarra leiða til að hagræða í rekstri.

„Launalækkunin fer þannig fram að hún tekur gildi fyrsta maí, sem er nokkuð táknrænt fyrir okkur. Þetta er baráttudagur verkafólks. Ég held að starfsfólki svíði það nú miklu meira því að þau upplifa mikla reiði og það eru sárindi yfir þessu. Það er komið ákveðið vantraust til stjórnenda út af þessu. Þetta er starfsfólk sem hefur lagt sig gríðarlega fram til að koma fyrirtækjunum á þann stað sem þau eru á í dag,“ segir hann og tekur fram að starfsaðstæður starfsfólks séu verulega erfiðar. Hvatinn til að leggja sig fram í vinnunni sé farinn með þessu.

Finnbogi segir stóran hluta vinnutíma starfsmanna í sjódeild fyrirtækjanna vera í yfirvinnu.

„Það hefur verið krafan hjá fyrirtækjunum að það sé unnin töluverð yfirvinna. Þeir hafa borgað vel fyrir það fram að þessu. Það má segja að þeim uppgripum sé lokið. Arnarlax er líka að fara í stærri breytingar. Þeir eru að fara í breytingar á vinnufyrirkomulagi. Það eru teknir út ákveðnir hlutir út úr pakkalaununum og síðan er verið að taka út og lækka yfirvinnuálagið. Það getur verið að heildarlaunin verði lægri, sérstaklega hjá þeim sem vinna mikla yfirvinnu.“ …

Forstjóri Arctic Fish sagði að í raun hafi fyrirtækið borgað mun hærri yfirvinnu en tíðkast á almennum vinnumarkaði um árabil vegna slæmra ráðlegginga á þeim tíma. Nú sé verið að leiðrétta það. …

Finnbogi segir það með engu réttlæta ákvörðunina.

„Nei, ég get ekki séð það. Fyrirtækið velur að yfirborga fólki sem er að vinna góða vinnu. Manni finnst mjög slæmt að fyrirtæki sem eru í góðum rekstri skuli grípa til þess að fara í þann hóp sem er að vinna mikilvægustu og erfiðustu störfin og já við skulum lækka launin þeirra. Það er mjög sérstakt.“

Hann tekur fram að þetta sendi verulega neikvæð skilaboð til nærsamfélagsins og starfsmanna. Þetta gefi í skyn að fyrirtækjunum sé sama um nærumhverfi sitt.