Lögreglan er samkvæmt frétt RÚV að athuga hvaðan kvíin kom og hver er eigandi hennar.
Samkvæmt okkar heimildum að vestan er Arnarlax eigandinn og virðist ekki hafa áttað sig á að kvíin hafði rekið af stað.
Í fréttinni kemur fram að lögreglan vinnur að því að tjóðra kvína svo hún endi ekki aftur út á sjó.
Hún mun hafa verið í geymslubóli neðarlega í firðinum og rekið þaðan. „Ekki er vitað hvenær hún losnaði en hún sást síðast á sínum stað á sunnudaginn.“
Allt i himnalagi hjá Arnarlaxi sem sagt.
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar sjókví sem rak á land innarlega í Patreksfirði. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, staðfestir þetta.
Hann segir kvína hafa rekið á sjó en þó hafi hana líklega ekki rekið nálægt neinni skipaumferð og þónokkuð frá þorpinu. Landhelgisgæslan hafi verið látin vita af málinu.
Lögregla segir að sjókvín hafi verið í geymslubóli neðarlega í firðinum og hana hafi rekið þaðan. Ekki er vitað hvenær hún losnaði en hún sást síðast á sínum stað á sunnudaginn. Hún var ekki með net og því var enginn fiskur í henni. …