Í frétt RÚV (sjá hér að neðan) segir frá því að ráðningarsamningum starfsfólks hjá sjókvíaeldisfyrirtækjunum Arctic Fish og Arnarlaxi verður sagt upp til að hægt sé að breyta kjörum. Formaður félags skipstjórnarmanna segir í fréttinni það á ábyrgð fyrirtækjanna að menn ráði sig aftur til vinnu á lakari kjörum.
Við vekjum athygli á því að þetta er að gerast á sama tíma og umfang sjókvíeldis í fjörðum landsins hefur aldrei verið meira.
Við höfum einmitt margoft bent á að störfum hefur ekki fjölgað í þessari grein í samræmi við vaxandi umfang og að allar líkur eru á að þeim muni beinlínis fækka samhliða hraðri sjálfvirknivæðingu og innleiðingu gervigreindar. Þessi þróun hófst sýnilega í fyrra þegar Arctic Fish lokaði skrifstofu sinni á Þingeyri við Dýrafjörð.
Þó störfunum fækki eykst hinsvegar skaðinn á lífríkinu og umhverfinu í beinu hlutfalli við aukinn fjölda eldislaxa í sjókvíunum og því miður líka þjáningarfullur dauði þeirra.
Samningum 34 starfsmanna Arctic Fish verður sagt upp til að hægt sé að breyta á vinnutíma þeirra og kjörum.
Daníel Jakobsson, forstjóri Arctic Fish, segir að verið sé að stytta vaktavikuna. Starfsfólk hafi unnið mikla yfirvinnu og því eigi að breyta. Þetta sé eins konar stytting vinnuvikunnar. …
Samkvæmt heimildum fréttastofu er sams konar breyting til skoðunar hjá Arnarlaxi. Björn Hembre forstjóri hefur ekki viljað tjá sig við fréttastofu í dag. Hann sagði í skriflegu svari við viðtalsbeiðni fréttastofu í gær að Arnarlax væri fyrirtæki í sífelldri þróun með það að markmiði að bæta alla ferla í starfseminni. Það þýddi að reglulega kæmu til breytingar í gangverki fyrirtækisins.