Fréttir
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Árnar þagna sýnd í Alta í Noregi annað kvöld
Sýning á Árnar þagna í Alta annað kvöld!
Matvælastofnun bregst við einbeittum brotavilja Kaldvíkur: Kæra vegna meðferðar á eldisdýrunum
Skelfilegt er að lesa um meðferð sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur á eldisdýrum sínum. Fyrirtækið lét í nóvember og desember um eina miljón eldisseiða drepast í sjókvíum í Fáskrúðsfirði. Um 440.000 seiði drápust í nóvember þegar þau voru sett illa særð út í innan...
Myndband Patagonia um baráttuna gegn sjókvíaeldi á Íslandi
Koma svo, tökum þátt!
Gat á sjókví Arnarlax í Patreksfirði
Gat fannst á netapoka sjókvíar Arnarlax í Patreksfirði þann 20. mars. Síðast var pokinn skoðaður þar á undan 23. febrúar svo gatið hefur mögulega verið á honum í tæpan mánuð. Í frétt Vísis kemur fram að gatið var um 50 x 25 cm stórt og á 20 metra dýpi. Í sjókvínni...
„Sjókvíaeldi á óskiljanlegum undanþágum frá lögum“ – Jón Kaldal skrifar
Skólpið sem rann á síðasta ári óhindrað í gegnum netmöskva sjókvía með eldislax var á við skólp frá 880.000 manns. Af hverju fær þetta að viðgangast? spyr Jón Kaldal talsmaður okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum í grein sem birtist í Fiskifréttum. Grein Jóns...
Öflug baráttusystir: Björk á forsíðu National Geographic
Verðskuldaður heiður þessarar öflugu baráttusystur okkar gegn sjókvíaeldi á laxi! RÚV fjallar um forsíðu National Geographic sem skartar Björk Guðmundsdóttur: „Annað hvert ár vel ég einn hlut sem ég berst fyrir,“ segir Björk Guðmundsdóttir í forsíðuviðtali í...
Ný auglýsing Patagonia til stuðnings villtra laxastofna
Við deilum þessari einföldu og áhrifamiklu auglýsingu Patagonia
Sjókvíaeldið tekur æ stærri hluta síldarstofna Eystrasaltsins
Hugsið ykkur þessa umgengni við auðlindir náttúrunnar. Stór hluti af síld sem veidd er í Eystrasalti fer ekki lengur til manneldis heldur er notuð í fóður fyrir eldislax. Til að framleiða eitt kíló af eldislaxi þarf mörg kíló af villtum fiski. Miklu meira af...
Yfirgangur Arnarlax í vesturbyggð.: Neitar að greiða fyrir afnot af innviðum samfélagsins
Hefur einhverjum stóriðnaði verið hleypt inn í landið með jafn ótrúlega óskynsamlegum hætti og sjókvíaeldi á laxi? Til viðbótar við stórtjón á náttúru og lífríkis landsins bætist nú þessi vitleysa. Sveitarfélögin lögðu í mikinn kostnað við uppbyggingu hafnaraðstöðu að...
Opinberar tölur um slysasleppingar gefa í besta falli hálfa mynd af raunveruleikanum
Jóhannes Sturlaugsson deildi þessari færslu á Facebook: Tjón á laxeldissjókvíum (göt á kvíapokum) eru tvöfalt tíðari en ráða má af fjölda tjóna sem tilkynnt eru af sjókvíaeldisfyrirtækjum. Það kom fram í rannsókn minni og Snæbjörns Pálssonar stofnlíffræðings á uppruna...
Staðfest að lax slapp úr sjókví Kaldvíkur og gekk í Fjarðará
Aðeins eitt er fullkomlega öruggt í sjókvíeldi og það er að alltaf sleppa einhverjir eldislaxar úr netapokunum. Ekki spurning um hvort heldur bara hvenær og hversu margir. Vísir fjallaði um þetta: ... Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hjá Laxfiskum hefur ásamt...
Örplastmengun alvarleg ógn við lífríki hafsins
Gríðarleg plastmengun er frá sjókvíaeldi með lax. Meira eða minna allur búnaður í þessari starfsemi er úr plastefnum. Netapokarnir eru úr næloni, flothringirnir, sem þeir hanga á, eru úr plasti og á hverju kvíaavæði eru margir kílómetrar af plaströrum sem hörðum...











