Skelfilegt er að lesa um meðferð sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur á eldisdýrum sínum. Fyrirtækið lét í nóvember og desember um eina miljón eldisseiða drepast í sjókvíum í Fáskrúðsfirði. Um 440.000 seiði drápust í nóvember þegar þau voru sett illa særð út í innan við 3 gráðu kaldan sjó. Stjórnendur fyrirtækisins létu það þó ekki stöðva sig heldur settu enn fleiri seiði, um 530.000 í kvíar í Fáskrúðsfirði í desember, sem drápust líka nánast öll.
Þetta segir í skýrslu Matvælastofnunar:
„Eftir rannsókn málsins og skoðun gagna frá Kaldvík telur Matvælastofnun að forsvarsmönnum Kaldvíkur hefði átt að vera ljóst að líkurnar á að seiðin gætu aðlagast og lifað af í þeim aðstæðum sem ríktu í sjó á þeim tíma sem flutningarnir áttu sér stað væru litlar sem engar, sérstaklega í ljósi reynslunnar af fyrri flutningi seiða 31. október þar sem mikil afföll urðu þótt aðstæður meðal annars með tilliti til hitastigs hefðu verið mun ákjósanlegri.“
Einn af æðstu stjórnendum Kaldvíkur á þessum tíma var Jens Garðar Helgason, núverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur ítrekað svarað þeim sem gagnrýna gríðarlega mengun frá sjókvíaeldi á þá leið að heimamenn myndu aldrei spilla fjörðunum sínum. Það er hollt að setja þau orð í samhengi við meðferð Jens Garðars og félaga á eigin eldisdýrum. Firðina eru þeir með að láni frá þjóðinni.
Niðurstaða eftirlitsskýrslu MAST er „alvarlegt frávik“ frá dýravelferð af hálfu Kaldvíkur.
Við minnum svo á að Kaldvík lét um 420.000 eldislaxa drepast í sjókvíum hjá sér í janúar. MAST hefur haft það mál til rannsóknar. Hvort það verði líka kært til lögreglu skýrist væntanlega innan skamms.
Í umfjöllun Vísis segir ennfremur:
… Eftirlitsmenn MAST hófu þann 9. desember síðastliðinn rannsókn á aðdraganda affalla sem áttu sér stað eftir útsetningu seiða á eldissvæðum Kaldvíkur á Einstigi og Fögrueyri í Fáskrúðsfirði í nóvember og desember í fyrra. Seiðin höfðu verði flutt úr seiðastöð Kaldvíkur í Þorlákshöfn austur á firði.
Hátt í hundrað prósent afföll urðu á seiðunum eftir flutningana sem voru talin mega rekja til margra þátta; lágs sjávarhita við útsetningu, vonds veðurs, langrar og krefjandi flutningaleiðar auk ástands seiða við komu í sjókvíar.
Fram kemur í skýrslu MAST sem skilað var í lok febrúar að ekki sé æskilegt að setja seiði út í sjó sem er undir 4°C og lækkandi. Hitastig á Einstigi og Fögrueyri var 3,7°C annars vegar og 2,8°C hins vegar umrædda daga í nóvember og desember.
Flutningur á seiðum er sagður streituvaldandi og þá myndast oft hreisturslos. Venjulega tekur flutningur frá Þorlákshöfn austur á firði 40 til 50 klukkustundir en vegna vonds veðurs tók flutningurinn 42 klukkustundir annars vegar og um 70 klukkustundir hins vegar.
Í niðurstöðum úr gæðamati seiða sem framkvæmt var af starfsfólki Kaldvíkur fyrir flutning þann 21. nóvember kom fram að stór hluti þeirra seiða var með misalvarlegar uggaskemmdir. Við skoðun dýralæknis í brunnbát eftir sama flutning var 82 seiða úrtak skoðað og voru öll seiðin með hreisturslos.
…
Eftir rannsókn málsins og skoðun gagna frá Kaldvík telur Matvælastofnun að forsvarsmönnum Kaldvíkur hefði átt að vera ljóst að líkurnar á að seiðin gætu aðlagast og lifað af í þeim aðstæðum sem ríktu í sjó á þeim tíma sem flutningarnir áttu sér stað væru litlar sem engar, sérstaklega í ljósi reynslunnar af fyrri flutningi seiða 31. október þar sem mikil afföll urðu þótt aðstæður meðal annars með tilliti til hitastigs hefðu verið mun ákjósanlegri. …