Aðeins eitt er fullkomlega öruggt í sjókvíeldi og það er að alltaf sleppa einhverjir eldislaxar úr netapokunum.

Ekki spurning um hvort heldur bara hvenær og hversu margir.

Vísir fjallaði um þetta:

… Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur hjá Laxfiskum hefur ásamt Snæbirni Pálssyni rannsakað uppruna sjókvíalaxa. Þeir hafa lagt mat á hvernig tilkynningar um tjón á sjókvíum sem leiða til göngu eldislaxa í íslenskar ár berist frá sjókvíaeldisfyrirtækjum til Matvælastofnunar, MAST.

„Það var fróðlegt að fá á hreint í rannsókninni það hvað varðaði lögheimili sjókvíaeldislax sem ég veiddi í Fjarðará í Seyðisfirði, sem yfirgaf uppeldisstöðvar sínar hjá Laxar fiskeldi. Þetta er þrátt fyrir að allt ætti að vera í sómanum með þær kvíar samkvæmt eftirliti eldisaðilans,“ segir Jóhannes.

„Sú hrygningarganga sjókvíalaxins í Fjarðará í Seyðisfirði, sem mögulega var sýktur af blóðþorra sem einmitt kom fyrst upp á sama ári í þessari kvíastæðu sem hann var runninn frá við Gripaldi í Reyðarfirði, vitnar líka til þess að ef slíkur átroðningur sjókvíaeldislaxa er þá þegar til vandræða í Fjarðará, hversu slæmt ástandið yrði í ánni ef sjókvíaeldi væri þröngvað upp á Seyðfirðinga eins og hætta er á,“ segir Jóhannes.

Sjókvíaeldislax veiddur í Fjarðará
Jóhannes vísar til skýrslu sinnar þar sem segir meðal annars:

„Á tímabilinu 2015-2022 þá var næturvöktun á vegum Laxfiska aðeins framkvæmd einu sinni í einni á á Austfjörðum og í það skipti (sept. 2021) veiddist einn sjókvíaeldislax í Fjarðará í Seyðisfirði.“

Og: „Sá lax var runninn frá fyrirtækinu Laxar fiskeldi og kom úr kví á kvíasvæðinu við Gripaldi í Reyðarfirði.“

Eins og Jóhannes benti á greindist í byrjun vetrar 2021 í fyrsta sinn á Íslandi veirusjúkdómurinn blóðþorri (ISA – Infectious salmon anaemia) á kvíasvæðinu við Gripaldi, þannig að mögulegt er að laxinn sem kom þaðan og gekk í Fjarðará í Seyðisfirði hafi borið sjúkdóminn blóðþorra. …