Gat fannst á netapoka sjókvíar Arnarlax í Patreksfirði þann 20. mars. Síðast var pokinn skoðaður þar á undan 23. febrúar svo gatið hefur mögulega verið á honum í tæpan mánuð.
Í frétt Vísis kemur fram að gatið var um 50 x 25 cm stórt og á 20 metra dýpi.
Í sjókvínni voru áður en gatið uppgötvaðist 117.133 laxar um þrjú kílógrömm að meðaltali. Á þessari stundu er ekki vitað hversu margir þeirra syntu út um gatið.
Hitt er vitað að sjókvíaeldisfyritækin ná að jafnaði ekki meira en 3 prósent þeim eldislöxum sem þau láta sleppa úr sjókvíunum.
Til að setja fjöldann sem var í sjókvínni í samhengi, þá telur allur íslenski villti laxastofninn í mesta lagi um 76 þúsund laxa, samkvæmt nýjustu tölum.
Þetta er sagan endalausa.
Í umfjöllun Vísis segir ennfremur:
… Matvælastofnun fyrirskipaði samkvæmt tilkynningunni að kafað yrði í allar eldiskvíar á eldissvæðinu til að ganga úr skugga um að sambærileg göt væru ekki til staðar á öðrum eldiskvíum. Auk þess fyrirskipaði stofnunin að kafað yrði undir þessa tilteknu eldiskví í leit að mögulegum stroklax. Lögð voru út net í grennd við eldiskví í samráði við Fiskistofu til að fanga mögulegan stroklax. Enginn lax veiddist í net eða sáust við köfun undir kví.
MAST mun að lokinni rannsókn gefa út eftirlitsskýrslu og birta hana á mælaborði fiskeldis á heimasíðu Matvælastofnunar.