Verðskuldaður heiður þessarar öflugu baráttusystur okkar gegn sjókvíaeldi á laxi!
RÚV fjallar um forsíðu National Geographic sem skartar Björk Guðmundsdóttur:
„Annað hvert ár vel ég einn hlut sem ég berst fyrir,“ segir Björk Guðmundsdóttir í forsíðuviðtali í bandaríska tímaritinu National Geographic þar sem hún ræðir umhverfismál, aktívisma og list. Björk er í þar hópi 33 fulltrúa breytinga og var valin fyrir að ljá umhverfismálum rödd sína og raunsæ afrek á því sviði. Meðal annarra sem hafa hlotið þennan heiður eru Michelle Yeoh, Lewis Pugh, Yvon Chouinard, Eurgenia Kargbo, Selena Gomez og Jason Mamoa.
National Geographic 33 er sería sem er innblásin af þeim 33 hugsuðum sem stofnuðu tímaritið árið 1888. Hugmyndin er að heiðra fjölbreyttan hóp aðgerðarsinna, alls staðar að úr heiminum og úr ólíkum stéttum, sem sýna vilja í verki.
„Parísarsáttmálinn er nútímaútópía sem er ekki hægt að ímynda sér en eina leiðin fyrir okkur til að lifa af er að sigrast á umhverfisvandanum,“ er haft eftir Björk. Þess vegna vandar hún valið þegar hún velur sér viðfangsefni til að berjast fyrir. „Þau eru nógu stór til að hafa áhrif en nógu lítil til að það sjáist munur.“
Meðal þess sem Björk hefur einbeitt sér að í umhverfismálum undanfarið er sjókvíaeldi á Íslandi. Hún dró fram gamalt lag, Oral, og fékk Rosalíu til að syngja inn á. Ágóðinn af laginu rennur til málskostnaðar vegna málaferla gegn sjókvíaeldi.
…