Hefur einhverjum stóriðnaði verið hleypt inn í landið með jafn ótrúlega óskynsamlegum hætti og sjókvíaeldi á laxi?
Til viðbótar við stórtjón á náttúru og lífríkis landsins bætist nú þessi vitleysa.
Sveitarfélögin lögðu í mikinn kostnað við uppbyggingu hafnaraðstöðu að kröfu sjókvíaeldisfyrirtækjanna sem neituðu svo að borga hafnargjöld samkvæmt gjaldskrá.
„Í frétt á vef Vesturbyggðar segir að samkvæmt þeim lagaramma sem höfnum er settur sé innheimta aflagjalda eina færa leiðin til þess að innheimta gjöld af þeim eldisfiski sem fer um hafnirnar. Sveitarfélög hefðu ekki getað farið í uppbyggingu á hafnarmannvirkjum í kringum sjókvíaeldi ef þau hefðu ekki talið að það væri heimild til að taka þjónustugjöld af eldisfiski vegna afla úr sjókvíum líkt og vegna annars afla.“
Ofan á allt þetta eyðileggja svo þungaflutningar þessara fyrirtækja þjóðvegi landsins.
RÚV fjallar um þetta ótrúlega mál.
Enn er mikil óvissa um hvort eldisfyrirtæki í Vesturbyggð muni fara fram á endurgreiðslu aflagjalda eftir að Landsréttur dæmdi innheimtu þeirra ólögmæta. Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að fari svo að Arnarlax krefjist endurgreiðslu á gjöldunum gæti hafnarsjóður sveitarfélagsins orðið órekstrarhæfur.
„Þau eru algjör forsenda þess að það sé hægt að halda úti starfsemi á höfnum hjá okkur,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar. Um háar fjárhæðir sé að ræða sem séu stór hluti af tekjum hafnanna.
„Enda er sjókvíaeldi stór hluti af atvinnustarfsemi hafna Vesturbyggðar,“ segir hún.
Björn Hembre framkvæmdastjóri Arnarlax sagði í samtali við fréttastofu að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvort krefjast ætti endurgreiðslu eða ekki. Þörf væri á góðu samtali við Vesturbyggð áður en sú ákvörðun væri tekin.
…
Í frétt á vef Vesturbyggðar segir að samkvæmt þeim lagaramma sem höfnum er settur sé innheimta aflagjalda eina færa leiðin til þess að innheimta gjöld af þeim eldisfiski sem fer um hafnirnar. Sveitarfélög hefðu ekki getað farið í uppbyggingu á hafnarmannvirkjum í kringum sjókvíaeldi ef þau hefðu ekki talið að það væri heimild til að taka þjónustugjöld af eldisfiski vegna afla úr sjókvíum líkt og vegna annars afla.