Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Umfjöllun um íslenska „zombílaxa“ í þýsku stórblaði

Umfjöllun um íslenska „zombílaxa“ í þýsku stórblaði

Þýska fjölmiðlastórveldið Süddeutsche Zeitung var að birta þessa ítarlegu fréttaskýringu um sögulega andstöðu Íslendinga við sjókvíeldi en hvergi í heiminum hefur svo yfirgnæfandi hlutfall þjóðar verið jafn andsnúinn þessari starfsemi. Úttektin er afrakstur heimsóknar...

„Hvað mun sagan segja?“ – Thomas Möller skrifar

„Hvað mun sagan segja?“ – Thomas Möller skrifar

„Margt bendir til að laxeldi í sjó við Ísland muni á endanum eyðileggja villta laxastofninn við Ísland, stofn sem hefur komið hingað í tæp 10 þúsund sumur. En það er hægt að grípa í taumana og forðast þetta slys sem annars mun fá slæma dóma í sögubókum...