Norsk yfirvöld hafa sektað sjókvíaeldisfyrirtækið Cermaq um 1,5 milljón norskra króna (19,5 milljón krónur) vegna brota á dýravelferðarlöggjöf landsins. Um 200 þúsund laxaseiði drápust þegar Cermaq setti þau í kvíar í ískaldan sjó í desember 2022.

Matvælastofnun (MAST) kærði sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík til lögreglu í byrjun þessa árs fyrir möguleg brot á dýravelferðarlöggjöf Íslands vegna aðfara við útsetningu seiða í Fáskrúðsfirði. Um 433 þúsund laxaseiði drápust þegar Kaldvík setti þau í allt of kaldan sjó í nóvember og um 530 þúsund drápust þegar fyrirtækið setti þau í kvíar í desember.

Að fara svona með eldisdýrin sín getur ekki kallast annað en einbeittur brotavilji.

Meðal stjórnenda Kaldvíkur á þessum tíma var Jens Garðar Helgason, núverandi Alþingismaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hafið í huga hvernig þessir menn fara með eigin eldisdýr þegar hann fer að ræða um virðingu sjókvíaeldisfyrirtækjanna fyrir fjörðunum sem þeir eru með að láni frá þjóðinni.

Fagmiðillinn Intrafish fjallar um málið. (Áskriftar krafist)