Skrifa undir og deila sem víðast!
Við trúum því seint að núverandi ríkisstjórn ætli að fórna Eyjafirði.
Við minnum á að fyrir liggur álitsgerð Hafrannsóknarstofnunar frá 2020 þess efnis að stofnunin leggist gegn öllu sjókvíaeldi á laxi í opnum sjókvíum í Eyjafirði.
Eyjafjörður er heimkynni 30 til 40 prósent af stofni íslensku sjóbleikjunnar sem á nú þegar undir högg að sækja af náttúrulegum ástæðum. Laxalúsin frá sjókvíaeldinu mun gera útaf við bleikjuna.
Undirskriftalistann má finna hér
Verndum Eyjafjörð gegn sjókvíaeldi!
Við skorum á stjórnvöld að tryggja verndun Eyjafjarðar gegn sjókvíaeldi á laxi. Nú heyrast enn á ný raddir um laxeldi í opnum sjókvíum í Eyjafirði, en meðal annars hefur Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra talað opinberlega með þeim hætti að burðarþolsmat ætti að fara fram í Eyjafirði. Kleifar Fiskeldi hafa nefnt fjörðinn í tengslum við umfangsmikil laxeldisáform sín á Tröllaskaga.
Ef burðarþolsmat á firðinum fer í gegn, hafa sveitarfélögin afar takmörkuð úrræði til að hafa áhrif á framhaldið. Við viljum sýna fram á andstöðu almennings gegn þessum áformum í tæka tíð og hvetjum því öll sem láta sér annt um Eyjafjörð, lífríkið sem tengist honum og náttúru landsins okkar almennt, til þess að skrifa undir.
SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi