Verð á eldislaxi á mörkuðum er sögulega lágt eða í besta falli um framleiðslukostnað í Noregi.

Fyrir liggur að framleiðslukostnaður í sjókvíeldi á laxi er töluvert hærri hér á landi. Má því reikna með að áfram verði tap af rekstri sjókvíeldisfyrirtækjanna einsog öll ár utan eitt frá því að þau hófu starfsemi sína hér við land, það elsta árið 2007.

Aðeins einu sinni á þeim tuttugu árum sem eru liðin frá 2007 hefur eitt þessara fyrirtækja greitt tekjuskatt hér á landi.

Íslensku sjávarútvegsfyrirtækin, sem tóku fé úr arðbærum rekstri sínum og keyptu hlut í sjókvíaeldisfyrirtækjunum, hafa horft upp á verðmæti eignarhluta sinna falla um að minnsta kosti 15 milljarða króna á undanförnum tveimur árum.

Er það mat markaðarins lýsandi fyrir trú hans á framtíð sjókvíeldis við Ísland.

Fagmiðillinn Intrafish fjallar um verðfallið. (Áskriftar krafist)