Norska Vísindaráðið um laxinn var að birta ársskýrslu sína og hún er kolsvört. Ástand villta laxins er skelfilegt og hefur aldrei verið verra:

„Stærstu ógnir af mannavöldum eru sjókvíaeldi á laxi og loftslagsbreytingar. Laxalús er mesta ógnin og hætta er á versnandi ástandi vegna ófullnægjandi aðgerða. Laxastofnar á Vestur- og Mið-Noregi eru þeir sem hafa minnkað mest. Áhrif sjókvíaeldis eiga stóran þátt í lélegri endurkomu. Nú er svo komið að ástand villta laxins í tæplega helmingi áa þolir ekki að þar sé stunduð stangveiði,“ segir meðal annars í skýrslunni.

Fastagestir á þessari síðu vita að hér hefur reglulega birst í athugasemdakerfinu kennari við fiskeldisdeild Háskólanns að Hólum og haldið því blákalt fram að norskir laxastofnar stæðu sterkt. Með ólíkindum er hversu langt lobbíistar fyrir sjókvíaeldið eru tilbúnir að ganga í vörnum þennan skaðlega iðnað.

Skýrsluna má nálgast hér.