Þýska fjölmiðlastórveldið Süddeutsche Zeitung var að birta þessa ítarlegu fréttaskýringu um sögulega andstöðu Íslendinga við sjókvíeldi en hvergi í heiminum hefur svo yfirgnæfandi hlutfall þjóðar verið jafn andsnúinn þessari starfsemi.

Úttektin er afrakstur heimsóknar blaðamanns útgáfunnar til Íslands. Fjallað er um allan þann skaða sem Íslendingar hafa orðið vitni að hér nú þegar: stórfelldar sleppingar eldislaxa úr sjókvíum, erfðablöndun við villta laxastofna og skelfilegt dýravelferðarástand í sjókvíunum.

Rætt er við fulltrúa okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, fulltrúa Vá – félags um vernd fjarðar og fleiri.

Við mælum með umfjöllun Süddeutsche Zeitung: (Áskriftar krafist)