Fréttir
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
Afleit staða í Haukadalsá: Fleiri eldislaxar veiðst en árið 2023
Afleit staða. Landssamband veiðifélaga deildi þessari færslu á Facebook: Þegar hafa fundist fleiri eldislaxar í Haukadalsá en árið 2023. Ákveðins misskilnings virðist gæta í umræðunni um eldislaxana í Haukadalsá. Vissulega reyndist stór hluti þeirra fiska sem fulltrúi...
Myndir af eldislöxum sem veiddust í Haukadalsá: Alls níu eldislaxar hafa nú veiðst
Hér eru myndir af eldislaxi sem náðist í gær í Haukadalsá, föstudaginn 15. ágúst. Þá er talan komin í níu eldislaxa. Þar af veiddust fjórir á stöng en var því miður sleppt í góðri trú og einn kom í net í Haukadalsvatni. Formlegar aðgerðir með köfun eru ekki hafnar....
Tilkynningum um eldislaxa rignir inn
Fjölmargar ábendingar streyma nú fram um eldislaxa sem hafa veiðst á undanförnum vikum. Sporðaköst á MBL segja frá þessum sem kom á land í Skagafirði. Við höfum lika fengið fréttir af sleppilöxum sem hafa komið í silunganet í Aðalvík og Jökulfjörðum fyrir vestan. Í...
Stjórnvöld hafa til þessa tekið afstöðu með sjókvíaeldisiðnaðinum gegn íslenskri náttúru
Við tökum undir allt það sem kemur fram í meðfylgjandi viðtali við Jón Helga Björnsson. Ekki síst þennan hluta: Jón Helgi segir aðeins einn jákvæðan hlut hafa komið út úr vinnu fyrri ríkisstjórnar hvað varðar vernd íslenska laxastofnsins. „Það var friðun...
Arctic Fúsk
Myndin skýrir sig sjálf.
Landssamband veiðifélaga höfðar mál gegn Arctic Fish
Arctic Fish skuldar eigendum bújarða tugi milljóna króna vegna kostnaðar sem þeir urðu fyrir þegar þeir reyndu sitt besta við að hreinsa sem mest af sleppilaxi fyrirtækisins úr ám haustið 2023. Arctic Fish neitar að borga og hefur Landssamband veiðifélaga nú ekki...
Meint byggðastefna sjókvíaeldisins og stóra myndin
Afar þungt er að hlusta á atvinnuvegaráðherra ræða endurtekið við fjölmiðla um „stóru myndina“ í samhengi við sjókvíaeldi á laxi og nefna meinta byggðafestu og meinta verðmætasköpun en minnast aldrei einu orði á hversu mikið er í húfi fyrir fjölda bændafjölskyldna um...
Umfjöllun Morgunblaðsins um uppruna strokulaxanna sem veiðst hafa undanfarið
Í vönduðu fréttayfirliti, sem var að birtast á MBL, kemur fram að MAST hefur til rannsóknar hvort tilkynningarskylda hafi verið brotin þar sem ekkert sjókvíaeldisfyrirtæki vill kannast við eldislaxinn sem er í miklu magni í Haukadalsá í Dölunum. Í fréttinni er...
Atvinnusköpun fyrir norska froskkafara
Sjókvíaeldi á Íslandi er atvinnuskapandi fyrir norska froskkafara. Vísir.is fjallaði um komu norsku froskkafaranna til landsins. Þrír eldislaxar voru veiddir af fulltrúum Stangveiðifélags Reykjavíkur í Haukadalsá í Dalabyggð í nótt. Fiskifræðingur segir neyðarástand...
Ekkert sjókvíaeldisfyrirtækjanna vill kannast við sleppislys
Tugir eldislaxa hafa þegar sést í Haukadalsá. Ekkert sjókvíaeldisfyrirtæki vill viðurkenna að hafa misst frá sér eldislax. Ekki hægt að skálda þetta rugl. RÚV ræddi við Sólmund Gísla Bergsveinsson, veiðieftirlitsmann hjá Fiskistofu. Sólmundur Gísli Bergsveinsson,...
Myndband af vettvangi við Haukadalsá
Hér er myndband sem Óskar Páll Sveinsson tók í nótt þegar Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur var að störfum í Haukadalsá í Dölunum við að ná eldislaxi úr ánni. Þetta er skelfilegt ástand. Ekkert af sjókvíaeldisfyrirtækjunum kannast við að hafa misst frá sér...
Doktor í dýraheilsu lætur af störfum sem forstjóri Kaldvíkur: Stjórnartíð hans einkenndist af laxadauða
Nú er búið að reka norska doktorinn í fiskiheilsu sem hefur verið að stýra starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur í um eitt ár. Ástandið hefur lengi verið skelfilegt í rekstri Kaldvíkur. Á undanförnum mánuðum hefur fyrirtækið bæði verið sektað og kært til...











