Nú er búið að reka norska doktorinn í fiskiheilsu sem hefur verið að stýra starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækisins Kaldvíkur í um eitt ár. Ástandið hefur lengi verið skelfilegt í rekstri Kaldvíkur. Á undanförnum mánuðum hefur fyrirtækið bæði verið sektað og kært til lögreglu fyrir meðferðina á eldisdýrum sínum.

Í Berufirði drápust í maí rúmlega 5% af eldislaxi í sjókvíum Kaldvíkur. Í júní drapst 6,7% til viðbótar.

Tölur fyrir júlí hafa ekki verið birtar enn.

Það á að fangelsa fólk sem stendur svona að verki og svipta fyrirtæki leyfum fyrir dýrahaldi.

Mbl.is fjallar um brotthvarf Rikardsen.

Stjórn eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Kald­vík­ur og Roy-Tore Rik­ardsen hafa kom­ist að sam­komu­lagi um að for­stjóri Kald­vík­ur láti taf­ar­laust af störf­um. Þetta kem­ur fram í yf­ir­lýs­ingu sem fyr­ir­tækið sendi frá sér rétt í þessu. Vi­dar Asp­ehaug verður starf­andi for­stjóri þar til nýr for­stjóri verður ráðinn í stöðuna.

Asp­ehaug hóf störf hjá Kald­vík árið 2022 og hef­ur síðustu þrjú ár verið í fram­kvæmda­stjórn fé­lags­ins og hafði yf­ir­um­sjón með teym­um sem vinna að fisk­heil­brigði og gæðaeft­ir­liti. Asp­ehaug er með doktors­gráðu í fisk­heil­brigði frá Há­skól­an­um í Ber­gen og er stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri og viðskipta­stjóri PatoGen AS sem er ein virt­asta rann­sókn­ar­stofa á sviði fisk­heil­brigðis Nor­egs.

„Við erum þakk­lát fyr­ir fram­lag Roy-Tore á því umbreyt­ing­ar­tíma­bili sem verið hef­ur eft­ir starfs­lok fyrr­ver­andi for­stjóra og stofn­anda fyr­ir­tæk­is­ins,“ seg­ir Asle Rønn­ing, stjórn­ar­formaður Kald­vík­ur.