Arctic Fish skuldar eigendum bújarða tugi milljóna króna vegna kostnaðar sem þeir urðu fyrir þegar þeir reyndu sitt besta við að hreinsa sem mest af sleppilaxi fyrirtækisins úr ám haustið 2023.

Arctic Fish neitar að borga og hefur Landssamband veiðifélaga nú ekki önnur ráð en að hefja málaferli á hendur fyrirtækinu.

Íslenskir bændur gegn norska iðnrisanum MOWI sem er meirihlutaeigandi Arctic Fish, sem mögulega er líka ábyrgt fyrir hamförunum sem nú ganga yfir lífríki landsins.

Já, við, íslenska þjóðin, höfum bara leyft þessu ástandi að skapast.

RÚV fjallar um málssókn Landssambands veiðifélaga:

Félögin kröfðu Arctic Fish um greiðslu þess sem út af stóð en Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga, segir viðræður hafa gengið illa.

„Þrátt fyrir yfirlýsingar Arctic Fish um að þau ætluðu að greiða þennan kostnað að fullu þá gekk það einhvern veginn ekki eftir. Eftir langt og þreytandi samtal sem hefur tekið mjög langan tíma þá virðist sem þeir ætli ekki að borga þennan kostnað.“ …

„Í farvatninu núna er lokainnheimtuviðvörun. Við þurfum þá að stefna málinu fyrir dómstóla til innheimtu kostnaðarins,“ segir Gunnar

„Þetta eru tæpar 30 milljónir og eru þá hluti af kostnaðinum, ekki kostnaður sem Fiskistofa og aðrir opinberir aðilar lögðu út fyrir Arctic Fish heldur kostnaður sem veiðifélögin lögðu beint út fyrir.“ …