Í vönduðu fréttayfirliti, sem var að birtast á MBL, kemur fram að MAST hefur til rannsóknar hvort tilkynningarskylda hafi verið brotin þar sem ekkert sjókvíaeldisfyrirtæki vill kannast við eldislaxinn sem er í miklu magni í Haukadalsá í Dölunum.

Í fréttinni er jafnframt bent á að „samkvæmt lögum um fiskeldi varðar stjórnarmenn og framkvæmdastjóra allt að tveggja ára fangelsi ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt.“

Mbl.is ræddi við Guðna Magnús Eiríksson, sviðsstjóra lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu:

Líklegast er að meintur eldislax sem fundist hefur í Haukadalsá hafi borist í ána frá fiskeldi á Vestfjörðum. Í ljósi langrar vegalendar frá Vestfjörðum yfir í ána er hugsanlegt að eldislax hafi borist í fleiri ár.

Þetta segir Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs Fiskistofu, í samtali við mbl.is. … Eftirlitsmaður á vegum Fiskistofu er nú á vettvangi að vinna að rannsókn málsins.

„Hann er með dróna og skoðar hvort að þarna séu fiskar í tuga eða hundraða tali, eins og talið er að geti verið. Mögulegt umfang á þessu er það fyrsta sem við skoðum þegar svona mál kemur upp,“ segir Guðni Magnús um rannsókn málsins. …

„Það er líklegast að þessir eldisfiskar hafi borist úr fiskeldi á Vestfjörðum. Þá ályktun dreg ég bara af því að það er það eldi sem við vitum um sem er næst Haukadalsánni. Hafi fiskurinn borist úr fiskeldi á Vestfjörðum er löng leið yfir í Haukadalsána og margar ár þar á milli. Það er því ekki ólíklegt að hann komi fram í öðrum ám,“ segir Guðni Magnús.

Guðni bendir á að viðurlög sé að finna í lögum við því að sleppa eldislaxi í ár. Hann bendir þó á að ekki sé hægt að beita neinum stjórnvaldssektum vegna slíkra brota. Mat á því hvort að brotið sé í bága við lögin sé þó í höndum Matvælastofnunar.

Samkvæmt lögum um fiskeldi varðar stjórnarmenn og framkvæmdastjóra allt að tveggja ára fangelsi ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt. …