Tugir eldislaxa hafa þegar sést í Haukadalsá. Ekkert sjókvíaeldisfyrirtæki vill viðurkenna að hafa misst frá sér eldislax.

Ekki hægt að skálda þetta rugl.

RÚV ræddi við Sólmund Gísla Bergsveinsson, veiðieftirlitsmann hjá Fiskistofu.

Sólmundur Gísli Bergsveinsson, veiðieftirlitsmaður hjá Fiskistofu, flýgur dróna yfir Haukadalsá í leit að eldislaxi í dag. Hann segir misjafnt hversu auðvelt er að skera úr um hvað sé eldislax og hvað ekki í gegnum auga drónans.

Fjöldi eldislaxa fannst í ánni í nótt en Fiskistofa telur líklegt að þeir hafi sloppið úr sjókvíaeldi á Vestfjörðum.

Að sögn Sólmundar eru það helst sár á laxinum sem gefa til kynna að hann sé úr sjókvíum. Sérfræðingar Fiskistofu fara yfir myndefnið úr drónanum í dag til að greina laxana betur.

„Maður sér alveg sárin á laxinum eftir kvíarnar.“