Afar þungt er að hlusta á atvinnuvegaráðherra ræða endurtekið við fjölmiðla um „stóru myndina“ í samhengi við sjókvíaeldi á laxi og nefna meinta byggðafestu og meinta verðmætasköpun en minnast aldrei einu orði á hversu mikið er í húfi fyrir fjölda bændafjölskyldna um allt land að hér sé hraustur og heilbrigður villtur íslenskur laxastofn (svo við nefnum aðeins þann hóp en ekki alla aðra unnendur villta laxins okkar).

Tekjur af sjálfbærri stangveiði eru ein af grunnstoðum mörg hundruð fjölskyldna í sveitum Íslands.

Sleppilaxar úr sjókvíaeldi eru manngerðar náttúruhamfarir í boði stórfyrirtækja sem eru skráð í kauphöllinni í Osló.

Stjórnendum þessara fyrirtækja er slétt sama um samfélagsábyrgð, hvort sem þar koma við sögu bændafjölskyldur eða framtíð þorpanna þar sem þau eru nú með starfstöðvar. Þau flytja burt störfin um leið og þeim hentar einsog gerðist á Þingeyri nú í sumar í boði Daníels Jakobssonar og félaga í Arctic Fish. Hagur hluthafanna er alltaf í fyrsta til síðasta sæti hjá þessum stóriðjufyrirtækjum.

Við viljum minna þessa ríkisstjórn á að stuðningsfólk hennar er í margföldum meirihluta á móti sjókvíaeldi á laxi.

Við trúum því ekki að talsambandið við fólkið í landu sé horfið nú þegar innan ríkisstjórnarflokkanna.

Myndin sem hér fylgir er af norskum froskköfurum með eldislaxa sem náðust úr einum hyl Hrútafjarðarár í síðustu stóru sleppingu Arctic Fish. Fyrirtækið er í meirihlutaeigu MOWI, stærsta sjókvíaeldisfyrirtækis heims. Það hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar alls staðar þar sem það starfar.