Afleit staða.

Landssamband veiðifélaga deildi þessari færslu á Facebook:

Þegar hafa fundist fleiri eldislaxar í Haukadalsá en árið 2023.

Ákveðins misskilnings virðist gæta í umræðunni um eldislaxana í Haukadalsá. Vissulega reyndist stór hluti þeirra fiska sem fulltrúi Fiskistofu taldi í upphafi vera eldislax, í raun vera hnúðlax.

Það breytir því þó ekki að fjöldi veiddra eldislaxa á vatnasvæði Haukadalsár er kominn í níu sem eru fleiri eldislaxar en veiddust þar árið 2023. Því er um hamfarir fyrir Haukadalsá að ræða og full ástæða til að óttast að eldislax sé nú þegar að ganga í fleiri ár á stóru landsvæði. Nú er miður ágúst og vel þekkt að eldislaxar ganga oft í ár langt fram á haust. Ástandið er grafalvarlegt og mikilvægt að brugðist verði við með víðtækum aðgerðum.

Lesa má viðtal Vísis við Gunnar Örn Petersen, framkvæmdastjóra Landssambands Veiðifélaga á Vísi.is.