Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Grunur um að eldislax hafi veiðist í Blöndu

Grunur um að eldislax hafi veiðist í Blöndu

Og Fiskistofa segir bara ekki benda á mig. RÚV fjallar um eldislax sem er veiddist í Blöndu: Strokulaxar úr Dýrafirði hafa greinst úr sex laxveiðiám, meðal annars í Blöndu. „Við erum búnir að senda sex fiska. Og þeir voru búnir að rannsaka tvo. Annar af þeim var...

„Furðu­leg meðvirkni með fúskurum“ – Jón Kaldal skrifar

„Furðu­leg meðvirkni með fúskurum“ – Jón Kaldal skrifar

„Hvaða eiga bændur að gera nú? Kæra ákvörðun Fiskistofu til úrskurðarnefndarinnar og vonast til að hún skipi Fiskistofu að láta leita að eldislaxi í ánum eftir tvö ár? Þetta er auðvitað glórulaus staða,“ skrifar Jón Kaldal, talsmaður okkar hjá Íslenska...

Bakteríusýking sem veldur sumarsárum í eldislaxi

Bakteríusýking sem veldur sumarsárum í eldislaxi

Enn ein hryllingsvíddin var að bætast við ömurlega vist eldislaxa í sjókvíum: Baktería sem veldur sumarsárum einsog sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni. Norska dýralækningastofnunin hefur verulegar áhyggjar af hraðvaxandi útbreiðslu þessarar hættulegu bakteríu með...

Skila verður eldislöxum sem veiðast til Hafrannsóknastofnunar

Skila verður eldislöxum sem veiðast til Hafrannsóknastofnunar

Kæru vinir, við minnum á mikilvægi þess að sleppa ekki laxi sem mögulega getur komið úr sjókvíaeldi. Öllum slíkum fiskum þarf að skila til Hafrannsóknastofnunar sem lætur erfðagreininga þá. Tekið er á móti grunsamlegum fiskum í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar við...