NÝ FRÉTT

Erfðagreining hefur staðfest að eldislaxar hafa veiðst í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Meirihlutinn af þessum fiskum kemur frá Daníel Jakobssyni og félögum hjá Arctic Fish sem hafa ítrekað misst eldislaxa úr sjókvíum sínum.

Í tilkynningu MAST segir:

Sameiginleg frétt Matvælastofnunar, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar um stöðu upprunagreininga laxa sem veiðst hafa.

Samtals hafa sýni úr 30 löxum verið send til erfðagreiningar. Af þessum eru tíu fiskar staðfestir eldislaxar og því 20 sem reyndust villtir. Eldislaxarnir veiddust í Haukadalsá, Hrútafjarðará, Vatnsdalsá, Blöndu, Reykjadalsá í Borgarfirði og Miðfjarðará. Sýni úr þremur löxum eru í erfðagreiningu.

Rakning stendur yfir á staðfestum eldislöxum og enn benda niðurstöður til sameiginlegs uppruna níu laxa úr Dýrafirði. Svo virðist sem einn staðfestur eldislax hafi annan uppruna og rannsókn stendur yfir á uppruna þess fisks. Stofnanirnar þrjár starfa áfram saman að rannsókn málsins og veita upplýsingar þegar frekari niðurstöður liggja fyrir. …