Og Fiskistofa segir bara ekki benda á mig.

RÚV fjallar um eldislax sem er veiddist í Blöndu:

Strokulaxar úr Dýrafirði hafa greinst úr sex laxveiðiám, meðal annars í Blöndu.

„Við erum búnir að senda sex fiska. Og þeir voru búnir að rannsaka tvo. Annar af þeim var eldislax. Hinn reyndist vera villtur. Svo var náttúrlega bara í morgun tekinn einn sem að er með mjög greinileg eldismerki sem verður sendur í greiningu líka,“ segir Guðmundur Rúnar Halldórsson formaður Veiðifélags Blöndu og Svartár.

Allir meintir eldislaxar í Blöndu hafa verið fangaðir með háfi í laxastiga. Hann hefur verið lokaður síðan í ágúst þegar tilkynnt var um gat á sjókví í Dýrafirði og veiddan eldislax í Haukadalsá í Dölum.

Það sýna seiðamælingar í sumar fremst á efsta veiðisvæðinu, svæði fjögur. Þar kom í ljós að rúmlega sjö prósent seiða sem mæld voru, reyndust blendingar. …

Strok laxanna úr Dýrafirði í sumar virðist minna, segir Guðmundur Rúnar, en strokið úr Patreksfirði 2023.

„Það eru blendingar í Blöndu núna sem að engin leið er að ná eða nokkurn skapaðan hlut að gera. Því að þetta er ekki alveg svona einfalt í þessum jökulám eins og er í bergvatnsánum að senda bara norska kafara eða draga fyrir net því að vatnið er svo litað að það er engin leið að sjá eitt eða neitt. Þetta er eini sénsinn okkar í Blöndu það er að ná þeim í laxastiganum.“