„Ég hef áhyggjur af því að nú sé áhlaupið að hefjast og hvað ætla yfirvöld og eftirlitsaðilar að gera? Þú tryggir ekki eftirá,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson í samtali við Sporðaköst á vef Morgunblaðsins.

Guðmundur Haukur er varaformaður veiðifélags Blöndu og Svartár en úr þeim ám voru 55 eldislaxar frá Arctic Fish fjarlægðir haustið 2023, langflestir seint í september. Arctic Fish hefur neitað að greiða bændum útlagðan kostnað og vinnu við hreinsunarstörfin.

Í viðtalinu segir Guðmundur m.a.:

„Eftir annasaman dag þá kíkti ég á skoðunar aðganginn í myndavélateljaranum sem er staðsettur í laxastiganum í Blöndu, svona rétt fyrir svefninn. Það er nú illgreinanlegt hvað er á ferðinni sökum yfirfallsins og gruggs í ánni en það fór í gegnum teljarann 80 cm skuggi sem varð til þess að ég fór snemma í gærmorgun og tók stöðuna í laxastiganum og grunur minn var fljótt staðfestur. Þar var stór fiskur sem er klárlega eldisfiskur. Frá mínum bæjardyrum séð er þetta bara spurning um að staðfesta upprunann, sem sagt úr hvaða eldisstöð. Ég hef áhyggjur af því að nú sé áhlaupið að hefjast og hvað ætla yfirvöld og eftirlitsaðilar að gera? Þú tryggir ekki eftirá,“ …