Gríðarlegur fjöldi eldislaxa kafnaði á nokkrum dögum í ágúst í sjókvíum norska sjókvíaeldisrisans MOWI við Nýfundnaland. Um 400.000 eldislaxar drápust af 1,7 milljón fiska á þremur eldissvæðum.
MOWI er móðurfélag Arctic Fish sem hefur ítrekað misst frá sér eldilax úr kvíum á Vestfjörðum. Íslenskir bændur og eigendur lögbýla með laxveiðiám eru nú að hefja málaferli gegn fyrirtækinu, sem er skráð í norsku kauphöllinni, þar sem það hefur neitað að endurgreiða þeim útlagðan kostnað við að hreinsa eldislax þess úr ám haustið 2023 þegar mikill fjöldi laxa slapp úr kví í Patreksfirði.
Stöðugur leki eldislaxa og stór strok eru óhjákvæmilegur hluti af sjókvíaeldi í netapokum. Gríðarlegur dauði eldisdýra er það líka í þessum grimmdarlega iðnaði.
Þegar MOWI lét um 2,6 milljón eldislaxa drepast í kvíum sínum við Nýfundnaland 2019 var fyrirtækið tímabundið svipt framleiðsluleyfum. Stjórnvöld í Nýfundnalandi hljóta að vera að skoða varanlega sviptingu leyfa í ljósi þessara nýjustu atburða.
Arctic Fish ásamt Arnarlaxi lét haustið 2023 lúsasmit í sjókvíum sínum í Patrekfirði fara algjörlega úr böndunum með þeim afleiðingum að slátra þurfti og farga hátt í tveimur milljónum laxa vegna þess að þeir áttu sér enga lífsvon, svo slæmir voru áverkar þeirra.
Athyglisvert er að bæði fyrirtæki héldu engu að síður leyfum sínum. Meðvirkni stjórnvalda og stofnana hér á landi með þessum iðnaði er rannsóknarefni.
… Mowi Canada East has confirmed an abnormal mortality event at three of its marine sites in Newfoundland, with early estimates suggesting losses of around 400,000 salmon.
The incident occurred at the company’s Broad Cove (AQ#1045), Harvey Hill East (AQ#991) and Harvey Hill South (AQ#1121) farms. The Government of Newfoundland and Labrador was notified within 24 hours, with the Department of Fisheries, Forestry and Agriculture overseeing the response, according to a post on Mowi’s facebook page.
The mortality was first disclosed on the Newfoundland Aquaculture Portal on 31 August after losses exceeded the 10 percent threshold that triggers mandatory reporting. At that stage, Mowi reported that the total inventories at risk across the three farms amounted to 1.71 million fish.
In a statement on 4 September, the company said it now estimates the combined loss “to be in the region of 400,000 fish,” describing the figure as approximate and subject to confirmation. Mowi added that a final number will be provided via the aquaculture portal once available.
The company attributed the mortality to a thermocline inversion, a natural oceanographic event where cold, oxygen-poor water upwells from deeper layers into warmer surface waters. Mowi said its environmental sensors recorded the phenomenon and that veterinary staff from the Aquatic Animal Health Division have carried out multiple visits to the affected farms. …