Umhverfisstofnun fékk þessa áskorun á sínum tíma en sinnti henni engu.

Krafa Náttúrugriða um aðgerðir árið 2023

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að Umhverfisstofnun hafi brugðist hlutverki sínu og skipað henni að ljúka rannsókn á þessu umhverfisslysi. Brot á lögum um umhverfisábyrgð geta varðað fangelsisvist ef sakir sannast.

Vísir fjlallaði um kröfu Náttúrugriða á sínum tíma.

Samtökin Náttúrugrið hafa sent kröfu á Umhverfisstofnun um tafarlausar aðgerðir vegna ætlaðs brots Arctic Sea Farm, sem samtökin segja eitt alvarlegasta umhverfisbrot sem upp hefur komið hér á landi.

„Brot fyrirtækisins teljum við varða við ákvæði laga um umhverfisábyrgð frá 2012, sem ekki hefur áður verið látið reyna á,“ segir í tilkynningu Náttúrugriða til fjölmiðla en hún er undirrituð af formanninum, Snæbirni Guðmundssyni jarðfræðingi.

„Brotin eru svo alvarleg að þau gætu að okkar mati einnig varðað refsingu skv. ákvæði almennra hegningarlaga um meiri háttar umhverfisbrot. Slík brot voru lýst refisverð með lagabreytingu 1999 og hefur einungis einu sinni verið ákært á grundvelli ákvæðisins en það var árið 2020 vegna losunar mengandi úrgangs.“

Náttúrugrið krefjast þess að Umhverfisstofnun grípi til aðgerða á grundvelli laga um umhverfisábyrgð vegna umhverfistjóns eða yfirvofandi hættu á umhvefistjóni. Í kröfunni er greint frá því að hin kynþroska eldislax úr sjókvíum Arctic Sea Farm hafi gengið upp í fjölda laxveiðiáa.

Náttúrugrið segja fyrirtækið og forsvarsmenn þess eiga að sæta ábyrgð á mögulegu umhverfistjóni og mögulega varði brot starfsmanna allt að fjögurra ára fangelsisvist. Það sé skylda Umhverfisstofnunar að bregðast við upplýsingum um atvik á borð við þau sem hér um ræðir.