RÚV ræddi við Snæbjörn Guðmundsson frá Náttúrugriðum um þennan sögulegan úrskurð úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Fjallað er um úrskurðinn á vef RÚV:

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um að grípa ekki til aðgerða samkvæmt lögum um umhverfisábyrgð þegar eldislaxar sluppu úr sjókvíum í Patreksfirði fyrir tveimur árum hefur verið felld úr gildi af úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Verulegur annmarki var á málsmeðferð Umhverfis- og orkustofnunar þegar hún ákvað að grípa ekki til aðgerða þegar 3.500 sluppu úr sjókví í Patreksfirði á grundvelli laga um umhverfisábyrgð. Þetta kemur fram í úrskurði útskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

…Í svari Umhverfisstofnunar 30. nóv. 2023, sem sent var Náttúrugriðum tveimur mánuðum eftir að samtökin fóru fram á að stofnunin gripi til aðgerða samkvæmt umhverfisábyrgðarlögum, er vísað í að Matvælastofnun og Fiskistofa séu með málið og fari eftir öðrum lögum sem skarist á við lögin um umhverfisábyrgð. Því sé ekki rétt að Umhverfisstofnun beiti úrræðum umhverfisábyrgðarlaganna.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála segir að með athafnaleysi sínu hafi Umhverfis- og orkustofnun ekki gætt nægilega að meginreglum stjórnsýslulaga um rannsóknarskyldu og málshraða. Stofnunin hefði átt að taka afstöðu tímanlega um hvort umhverfistjón væri yfirvofandi samkvæmt umhverfisábyrgðarlögunum. Það hafi ekki verið gert og því felldi úrskurðarnefndin ákvörðun stofnunarinnar úr gildi. …

Snæbjörn Guðmundsson formaður Náttúrugriða segir samtökin ánægð með úrskurðinn:

„Hérna er verið að, við getum sagt, slá á fingur stofnunarinnar og stjórnsýslunnar í kringum þetta mál. Og það er verið að árétta að það eru til lög um umhverfisábyrgð sem taka á því sem kallað er umhverfistjón í lögunum sem varð augljóslega við þessa sleppingu 2023. Stofnuninni, Umhverfis- og orkustofnun, henni sem sagt ber núna skylda til að taka málið aftur til umfjöllunar í samræmi við þau lög. Það er ekki hægt að ýta svona málum svona lengi á undan sér að þau einhvern veginn hálffyrnist eða dagi bara uppi í kerfinu. Umhverfisstofnun þarf að taka sig taki og bregðast skjótt við. Þegar að verður umhverfistjón þá snýst málið um að bregðast strax við en ekki bíða og hinkra og sjá til.“