Það er ekki í boði að gera ekki neitt. Við munum sjá sérfræðinga í rekköfun í ánum innan skamms á vegum okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, Landssambandi veiðifélaga og baráttusystkina okkar hjá NASF.
Aðgerðarleysi opinberra stofnana er hneyksli.
Mbl fjallar um ákvörðun okkar og tölvupóst sem Landssamband veiðifélaga sendi til allra aðildarfélaga og leigutaka til að útskýra ákvörðunina.
Í kjölfar frétta um gat á kvíum í Eyrarhlíð, sem leitt hefur til þess að eldislaxar hafa veiðst meðal annars í Haukadalsá og Vatnsdalsá, fór Landssamband veiðifélaga fram á að Fiskistofa gripi til viðeigandi aðgerða. Sérstaklega var farið fram á að Fiskistofa skipulagði leit að eldislaxi á öllum laxgengum ám frá Andakílsá í vestri til Fnjóská í austri, í samstarfi við veiðifélög á hverjum stað. Í samræmi við lög um fiskeldi hefði Fiskistofa átt að fjármagna slíkar aðgerðir, m.a. með aðkomu norskra kafara og stuðningi við veiðifélög.
Í síðustu viku bárust svör frá Fiskistofu, sem leitaði einnig álits Hafrannsóknastofnunar (Hafró). Niðurstaða Fiskistofu var sú að umfang sleppinganna réttlætti ekki aðgerðir að þeirra mati að svo stöddu. Landssambandið telur slíkt aðgerðarleysi óboðlegt og hefur því ákveðið, í samstarfi við IWF og NASF, að hefja leit að eldislaxi í nokkrum ám á svæðinu.
Aðkoma norskra kafara er bæði kostnaðarsöm og krefst skipulagningar. Við leitum því til ykkar um fjárhagslegan stuðning til að hrinda þessum aðgerðum í framkvæmd, fyrst að opinberar stofnanir hafa ákveðið að bregðast ekki við. Við munum jafnframt halda áfram samstarfi við Fiskistofu, bæði varðandi innflutning skutbyssa og möguleika á endurgreiðslu vegna þeirra nauðsynlegu aðgerða sem við grípum til til að vernda villta laxastofna okkar.
Rökin fyrir aðgerðum núna
- Fleiri en ein slepping: Nú þegar hefur verið staðfest að eldislaxarnir sem fundist hafa eru úr fleiri en einni sleppingu.
- Réttur tímapunktur: Við þurfum að vita hver staðan er í ánum. Í stóru sleppingunni hjá Arctic Fish árið 2023 hófu eldislaxar fyrst að hellast í árnar um miðjan september.
- Mat á hreinsunarþörf: Upplýsingar úr köfun munu segja til um hvort grípa þurfi til umfangsmikils hreinsunarstarfs nú í haust.
- Lykilgögn fyrir rannsóknir: Gögn úr köfun verða grundvöllur fyrir mat á virkni áhættumats erfðablöndunar sem Hafró gefur út. Í fyrrahaust fundust 23 eldislaxar í litlu þjálfunarverkefni í rekköfun, þar af sex fiskar úr ótilkynntum sleppingum. Slíkar rannsóknir hafa verið vanræktar og við getum ekki setið hjá lengur.
- Lagabreytingar í vændum: Ríkisstjórnin boðar ný lög um lagareldi á vorþingi. Þar verður barist fyrir skýrum ákvæðum sem gera sjókvíaeldisfyrirtæki ábyrga fyrir kostnaði við hreinsun eldislaxa úr ám. Við munum krefjast þess að kostnaður við þetta verkefni verði endurgreiddur.
Við hvetjum ykkur til að taka virkan þátt í þessari sameiginlegu baráttu fyrir framtíð villta laxins á Íslandi. Framlög til verkefnisins má leggja inn á sérstakan reikning Landssambandsins sem helgaður er þessu verkefni:
Reikningsnúmer: 0326-13-000035
Kennitala: 640374-0129
Framkvæmdastjóri mun sjá til þess að öllum framlögum verði ráðstafað í samræmi við tilgang verkefnisins.
Að lokum viljum við árétta að þessi köfun er einungis viðbragð við umhverfisslysum sem eru ábyrgð fyrirtækja sem stunda eldi í opnum sjókvíum hér á landi og stjórnvalda sem leyfa slíkan iðnað. Þessi aðgerð má aldrei verða notuð sem réttlæting fyrir áframhaldandi starfsemi sjókvíaeldis á laxi í opnum kvíum.