Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Ólöglegar netaveiðar í Ölfusá kærðar

Ólöglegar netaveiðar í Ölfusá kærðar

Vel gert Drífa og Ólafur á Torfastöðum! Formaður Veiðifélags Árnesinga, Jörundur Gauksson hefur verið kærður fyrir ólöglegar netaveiðar á laxi í Ölfusá. Kærendur eru Drífa Kristjánsdóttir og eiginmaður hennar Ólafur Einarsson landeigendur og ábúendur að Torfastöðum í...

Netum fækkar í Ölfusá

Netum fækkar í Ölfusá

Mikilvægur áfangasigur vannst í dag þegar engin laxveiðinet fóru út í Ölfusá við jarðirnar Auðsholt og Auðsholtshjáleigu. Landeigendur Auðsholtshjáleigu hafa stundað grimmar netaveiðar á laxi í sumar, einsog undanfarin ár, langt umfram 25 prósent veiðirétt sinn. Með...

Myndir af netum í Ölfusá

Myndir af netum í Ölfusá

Ótrúlegt er að sjá þessar aðfarir. Yfirvöld hljóta að grípa í taumana. Árni Baldursson deildi þessari færslu og myndum á Facebook: Lömbin þagna …. Her eru mindir af neta lögnum Formanns Veiðifelags Arnesinga …Jörundur Gauksson í Kaldaðarnesi , netin eru langt fra...

Hvað segir gervigreindin?

Hvað segir gervigreindin?

Þegar orðin „farmed salmon“ eru slegin inn í Google leitina kemur upp þessi texti og mynd sem hér er fylgir skjáskot af. Myndin sýnir helsærðan eldislax af völdur laxalúsar eða sjúkdóma. Þið getið prófað sjálf að leita í Google að „farmed salmon“. Umheimurinn er að...