Móðurfélag Arctic Fish sem var að loka starfsstöð sinni á Þingeyri er norski sjókvíaeldisrisinn Mowi. Fyrirtækið er nú skipta út starfsfólki við slægingu og flokkun í vinnsluhúsi sínu í Skotlandi fyrir sjálfvirkan búnað sem gervigreindin stýrir

,,Sjálfvirknin nær yfir allt pökkunarferlið. Kerfi vélmenna frá Samey sér nú um yfir 90 prósent af þeim kössum sem eru framleiddir,“ er haft eftir talsmanni Mowi í fréttinni.

Störfin eru að hverfa við fóðurstýringu og störfin eru að hverfa úr vinnsluhúsum sjókvíaeldisfyrirtækjanna.

Það sem hverfur hinsvegar ekki er óhreinsuð botnlaus mengun frá sjókvíunum í íslenska firði og skaði á villtum sjávarlífverum og villta laxinum okkar.

Við bendum lesendum á að smella á fréttina og telja starfsfólkið á myndinni innan úr nýja vinnsluhúsi móðurfélags Arctic Fish.

(Uppfært: Okkur hefur borist ábending frá glöggum gesti í athugasemdakerfinu. Það er hægt að sjá starfsmenn innan um vélmennin. Við skorum á lesendur að reyna að finna þá.)

Mowi installs AI-powered grading and robotics at Blar Mhor facility