Mikilvægur áfangasigur vannst í dag þegar engin laxveiðinet fóru út í Ölfusá við jarðirnar Auðsholt og Auðsholtshjáleigu.
Landeigendur Auðsholtshjáleigu hafa stundað grimmar netaveiðar á laxi í sumar, einsog undanfarin ár, langt umfram 25 prósent veiðirétt sinn. Með samningum eigenda Auðsholts við stangveiðifólk um nýtingu 75 prósent veiðiréttarins er tryggt að sá göngulax sem enn er á ferðinni mun komast lifandi á hrygningarslóðir sínar ofar í vatnasvæði Ölfusár og Hvítár sem eru víðfemustu heimkynni Atlantshafslaxins.
Nú er svo komið að einu netaveiðar á þessu svæði eru stundaðar af sjálfum formanni Veiðifélags Árnesinga, Jörundur Gaukssyni, og það með netalögnum og veiðigildrum sem þverbrjóta lög um veiðar í ferskvatni. Þær aðfarir þarf að stöðva þegar í stað.
Mbl.is fjallar um baráttuna gegn netaveiðum í Ölfusá.
Starir ehf, sem er leigutaki nokkurra laxveiðiáa á Íslandi hefur samið við jörðina Auðsholt í Ölfusi um leigu á veiðirétti fyrir landi jarðarinnar. Með þessu er tryggt að netaveiðiréttur sem jörðin á, verður ekki nýttur í sumar, þess í stað verður stunduð þar stangveiði.
Um er að ræða tvær jarðir sem skipta með sér veiðiréttinum. Það er Auðsholt og Auðsholtshjáleiga. Hefur skiptingin verið þannig að hjáleigan hefur haft 25% af veiðirétti en sjálft Auðsholt átt 75%.
Pétur Bjarnason og Ágústa Björnsdóttir keyptu Auðsholt fyrir tveimur árum og hafa ekki nýtt netaveiðiréttinn. Vilja þau stuðla að því að styrkja laxastofninn á svæðinu og hafa því ekki sett út net í Ölfusá. Hjáleigan hefur hins vegar stundað netaveiði og það með góðum árangri. Nú hefur hjáleigan veitt í net í tvær vikur og þar með nýtt sinn rétt að fullu, að því er heimildamenn Sporðakasta fullyrða. Nú eru netin komin á þurrt og munu Starir selja stangveiðileyfi á svæðinu í sumar.
Samkvæmt því sem Sporðaköst komast næst er ekki sátt í málinu meðal landeigenda og Auðsholtshjáleiga telur sig geta nýtt frekari netarétt. Veiðivarsla verður á svæðinu enda markmiðið að netin hafi verið tekin upp í sumar fyrir landi Auðsholts í Ölfusi. Eftir því sem næst verður komist mun réttur hjáleigunnar til netaveiði virkjast í stuttan tíma í lok ágúst að nýju en þá ættu laxagöngur að vera komnar upp Ölfusá og á leið í Sogið og Stóru–Laxá og önnur heimkynni sín á svæðinu.
Netaveiðar í Ölfusá og Hvítá eru mikið hitamál. Efra Auðsholt leggur enn sín net í námunda við Iðu og Stóru–Laxá.
Enn er veitt í net í Kaldaðarnesi þar sem formaður Veiðifélags Árnesinga, Jörundur Gauksson ræður ríkjum. …
Netalagnir Auðsholtshjáleigunnar tóku á bilinu 100 til 200 laxa fyrstu tvær vikur júlímánaðar. það staðfesta myndir sem teknar voru með drónum. Til samanburðar má geta þess að það er sambærilegt magn og veiddist í öllu Soginu í fyrra. Tölur um stangveiðina þar eru aðeins á reiki því nokkrir aðilar leigja veiðiréttinn en líkast til var heildarveiðina einmitt á bilinu 100 til 200 laxar. …