Sjálfbær nýting á villtum laxi hefur verið ein af lykilstoðum undir búsetu í sveitum landsins kynslóð eftir kynslóð bænda. Þessum verðmætum,sem mörg hundruð fjölskyldur í dreifbýli byggja lífsafkomu sína á, sýna sjókvíaeldisfyrirtækin fullkomna fyrirlitningu.
Vísir ræddi við Önnu Heiðu, sýningarstjóra nýrrar sýningar í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri.
Sögu laxveiða í Borgarfirði eru gerð góð skil á nýrri sýningu á Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri. Sýningarstjórinn segir að Borgarfjörður sé vagga laxveiða á Íslandi en tekjur af laxveiði eru til dæmis rúmlega 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu.
…„Ég held að mér sé óhætt að segja að Borgarfjörðurinn sé vagga laxveiðanna því það eru allar betri veiðiár landsins hér í héraði eins og Langáin, Grímsá, Norðurá og Þveráin”.
Anna Heiða segir mikla og langa hefð fyrir stangaveiði í Borgarfirði.
„Já, það er frá lok 19. aldar, sem byrjað var hér að veiða á stöng en Andrés Andrésson Fjeldsted byrjaði á því og fékk erlenda veiðimenn til að koma því hann kunni ensku og þeir byrja að leigja árnar hérna af honum,” segir Anna.
…„Tekjur af laxveiði eru til dæmis ríflega 50% af tekjum landbúnaðar í Borgarfirði þannig að þetta er gríðarlega mikilvæg atvinnugrein, sem þarf að passa vel upp á,” segir Anna Heiða.