Vel gert Drífa og Ólafur á Torfastöðum!

Formaður Veiðifélags Árnesinga, Jörundur Gauksson hefur verið kærður fyrir ólöglegar netaveiðar á laxi í Ölfusá.

Kærendur eru Drífa Kristjánsdóttir og eiginmaður hennar Ólafur Einarsson landeigendur og ábúendur að Torfastöðum í Biskupstungum.

„Ég er að kæra hvernig staðið er að netalögn sem ég tel að sé ólögleg. Það er búið að reisa þarna einhverja girðingu og netið er hengt á hana. Samkvæmt lögum, eins og ég skil þau þá er bannað að standa svona að netalögn. Það ber að leggja net út frá landi og má ekki fara með þau út í miðja á og alls ekki gera svona girðingu,“ segir Drífa í viðtali við MBL.

Torfstaðir eiga land að Tungufljóti og sá lax sem gengur í ánna fer um Ölfusá og síðar Hvítá á leið sinni á óðul sín í Tungufljóti.

Formaður veiðifélags Árnesinga hefur stundað að drepa lax í stórum stíl með netalögnum sem af myndefni (ljósmyndum og drónavídeóum) að dæma eru kolólöglegar. Með þessum hætti hefur hann komið í veg fyrir að laxinn nái á hrygningarsvæði sín ofar á þessu stórfenglega vatnasvæði.

Í viðtalinu segir Drífa ennfremur:

Hún segist ekki þekkja hvernig veiðin hafi verið í sumar en Jörundur hafi sagt sér sjálfur í janúar í fyrra að sumarið 2023 hefðu þeir drepið 200 laxa. „Sumir töldu þetta vanmat en ég veit ekkert um það,“ sagði Drífa.

En er ekki ofurlítið sérstakt að þurfa að vera að kæra formann Veiðifélags Árnesinga fyrir svona aðfarir?

„Jú. Mér finnst það mjög leiðinlegt og mér finnst það mjög sorglegt. Við höfum verið að vinna að því að búa til á sem er sjálfbær og stuðla að því að lax hrygni í henni. Svo er bara einhver staða þannig að það má ekki taka upp netin og þetta er ekkert nýtt. Það hefur líka verið sótt á okkur og við sökuð um ýmsa hluti. Þetta segir mér hvað það er mikill illvilji í garð þeirra sem þeir telja að séu að græða svona mikið á laxveiði. Fyrirgefðu að ég segi þetta svona. En ég upplifi þetta sem illvilja,“ svaraði Drífa.

Málið er nú komið inn á borð lögreglu sem mun væntanlega rannsaka það á næstunni.