Áskorun frá okkur hjá Íslenska nátturuverndarsjóðnum og baráttusystkinum okkar hjá Verndarsjóður Villtra Laxastofna (NASF) til Landssambands veiðifélaga, Atvinnuvegaráðuneytisins, Hafrannsóknastofnunar og Fiskistofu.
„Áskorun vegna stöðu villtra laxastofna sumarið 2025
Villti íslenski laxastofninn hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár vegna áhrifa loftslagsbreytinga og alvarlegra afleiðinga vaxandi sjókvíaeldis á laxi við landið. Hnignunin sem nú blasir við gefur tilefni til alvarlegrar umhugsunar. Spár um ágætis laxgengd fyrir sumarið 2025 hafa ekki gengið eftir og hafa göngur og veiði það sem af er sumri verið verulega undir væntingum.
Þó enn sé töluvert eftir af göngutíma villtra laxa, er ljóst að nauðsynlegt er að fyrir liggi viðbragðsáætlanir sem hægt er að virkja tafarlaust ef þróunin heldur áfram á sama veg. Slök laxgengd kallar á að hægt sé að bregðast hratt og markvisst við með aðgerðum sem miða að því að tryggja sjálfbæra hrygningu næsta haust og framtíð stofnsins til lengri tíma.
Vegna þessarar stöðu skora undirrituð samtök á Landssamband veiðifélaga, Atvinnuvegaráðuneytið, Hafrannsóknastofnun og Fiskistofu að tryggja að viðbragðsáætlanir með eftirfarandi aðgerðum séu til staðar og tilbúnar til framkvæmdar tafarlaust:
- Banna dráp á villtum laxi það sem af lifir veiðitímabils. Til þess að ná fram vernd á villtum laxi þarf öll veiði á honum að byggja á sleppiskyldu.
- Banna allar veiðiaðferðir og búnað sem hindrar að hægt sé að sleppa laxi. Öll veiðitól og aðferðir sem valda alvarlegum skaða eða draga úr líkum á að hægt sé að sleppa laxi þarf að banna.
- Setja á sölubann á villtum laxi.
Miðað við ástand stofnsins er ekki rétt að villtur lax sé til sölu í verslunum landsins.
– Verndarsjóður Villtra Laxastofna (NASF) og Íslenski Náttúruverndarsjóðurinn (IWF).