Fréttir

Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA

ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.

Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:

00
:
00
:
00
:
00
Enn bólar ekkert á svari stjórnvalda við fyrirspurn ESA

Enn bólar ekkert á svari stjórnvalda við fyrirspurn ESA

Rúmlega 38 dagar eru nú liðnir frá því framlengdur frestur stjórnvalda til að svara um það sem við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum (og fleiri) teljum vera ólöglega útgefin leyfi fyrir sjókvíaeldi við Ísland. Embættismenn landsins eru augsýnilega í miklum vandræðum...

„Að segja eitt en gera annað“ – Jón Kaldal skrifar

„Að segja eitt en gera annað“ – Jón Kaldal skrifar

Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum verið að skrifast á við forstjóra Arnarlax í Viðskiptablaðinu undanfarnar vikur. Hér er nýjasta innleggið. Umfjöllunarefnið er sjálfbærni því þrátt fyrir að Áfrýjunarnefnd neytendamála hafi staðfest ákvörðun Neytendastofu...

30 dagar og 10 klukkutímar…

30 dagar og 10 klukkutímar…

...eru nú liðnir frá því að framlengdur frestur til að svara upplýsingabeiðni ESA um útgáfu sjókvíaeldisleyfa rann út án þess að íslensk stjórnvöld hafi svarað. ESA, eftirlitsstofnun EFTA, vill fá upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi við Ísland án þess...

Samantekt úr umsögn IWF um lagareldisfrumvarp ríkisstjórnarinnar

Samantekt úr umsögn IWF um lagareldisfrumvarp ríkisstjórnarinnar

Frestur til að skila umsögnum um lagareldisfrumvarp atvinnuvegráðherra rann út á föstudaginn. Þetta er samantekt úr umsögn okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, sem fylgir hér líka í heild. Frumvarp atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi er að mörgu leyti enn...