Rifjum þetta glænýja dæmi upp í tilefni af grein Berlingske um heljartök SFS á íslenskum stjórnmálamönum og stofnunum.

Fjarskiptastrengir eru „lífæð“ íbúa á Vestfjörðum segir Neyðarlínan í umsögn um breytt lagaákvæði sem mun heimila botnfestingar sjókvía innan helgunarsvæða fjarskiptastrengja.

Sú tillaga birtist öllum – nema SFS – að óvörum í fjarskiptafrumvarpi innviðaráðherra milli þess sem það var kynnt í Samráðsgátt síðastliðið haust og síðan lagt fram á Alþingi seint í desember.

Neyðarlínan varar með afdráttarlausum hætti við málinu vegna áhrifa á íbúa á Vestfjörðum. Ef þessi heimild verður að lögum verður „öryggi almennings þar sett skör lægra en annarra landsmanna,“ segir Neyðarlínan.

Í umsögnum um frumvarpið kemur fram að auk Neyðarlínunnar leggjast Míla, Ljósleiðarinn og Fjarskiptastofa af hörku gegn þessari breytingu á lögum.

Mögulegum breytingum er hins vegar fagnað í tveimur umsögnum, frá SFS og Arnarlaxi.

Heljartök eru þetta og ekkert annað.

Við minnum líka á að eldislax sem alinn er í sjókvíum við Ísland fer 99% óunninn úr landi og fyrirtækin eru að meirihluta í eigu norskra móðurfélaga.