Viðreisn í erlendum fjölmiðlum:

Kvótakerfið á Íslandi er farið úr böndunum og hefur skapað yfirstétt innan sjávarútvegsins sem hefur óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir.

Viðreisn á Alþingi:

Tökum upp kerfi í sjókvíaeldi sem byggir á kvótakerfinu, köllum það „laxahlut“ og heimilum framsal og leigu á þessum takmarkaða framleiðslukvóta á eldislaxi, sem var deilt út án endurgjalds á sínum tíma.

Fréttaskýring Berlingske um olígarkavæðingu íslensks sjávarútvegs.

Þetta er úr umsögn okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum um lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra:

„Við leggjumst alfarið gegn því að komið verði á kerfi að fyrirmynd fiskiveiðistjórnunarkerfis landsins, enda nýtast eiginleikar þess ekki í umgjörðinni um sjókvíaeldi.

Umfangs jókvíaeldis og vernd náttúrunnar eru betur tryggð með tímabundnum rekstrarleyfum, skýrum skilyrðum og raunverulegri heimild til afturköllunar. Kvótakerfi er hvorki nauðsynlegt né eðlilegt stjórntæki í þessu samhengi.“