
…eru nú liðnir frá því að framlengdur frestur til að svara upplýsingabeiðni ESA um útgáfu sjókvíaeldisleyfa rann út án þess að íslensk stjórnvöld hafi svarað.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, vill fá upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi við Ísland án þess að stjórnvöld hafi áður látið fara fram flokkun og mat á ástandi vatnshlota. Það gengur gegn vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Með öðrum orðum, líklega var ólöglega staðið að útgáfu leyfanna.
Á forsíðu vefsíðu Íslenska náttúruverndarsjóðsins er nú hægt að fylgjast með hversu langt stjórnvöld eru komin fram yfir frestinn til að svara ESA.
Frestur var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda.
Það var umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem tók að sér að svara fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Enn bólar ekki á svari.
Þetta er afar athyglisverð staða að ýmsu leyti. Ekki síst vegna þess að viku eftir að framlengdur frestur ESA rann út lagði atvinnuráðherra fram á Alþingi frumvarp um lagareldi sem er augljóslega ekki í samræmi við lög um stjórn vatnamála og Evróputilskipunina.
Í umsögn Umhverfis- og orkustofnunar um drög ráðherra var þó bent á þetta atriði:
„…einnig er nauðsynlegt að frumvarpsdrögin í heild sinni taki mið af lögum um stjórn vatnamála.“
Ekki var brugðist við þessari ábendingu Umhverfis- og orkustofnunar í endanlegu frumvarpi atvinnuvegaráðherra.
Staðan er því sú að atvinnuvegaráðherra hunsar ábendingar Umhverfis- og orkustofnunar um nauðsynlega tengingu lagareldisfrumvarpsins við lög um stjórn vatnamála, og umhverfis- og loftslagsráðherra svarar ekki ESA um hvort farið hafi verið eftir vatnatilskipun ESB, sem lög um stjórn vatnamála byggja á, við útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi.
Og atvinnuveganefnd Alþingis lætur eins og ekkert sé og tekur lagareldisfrumvarpið á dagskrá í dag.
Kæru lesendur, ef þið hafið tillögur um hvernig hægt er að koma viti fyrir þessa ríkisstjórn þá eru allar tillögur vel þegnar hér í athugasemdakerfinu.
Hér er hægt að fylgjast með teljaranum sem sýnir hversu langt stjórnvöld eru komin fram yfir framlengdan frest ESA til að skila upplýsingum um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi.
