Frestur til að skila umsögnum um lagareldisfrumvarp atvinnuvegráðherra rann út á föstudaginn.
Þetta er samantekt úr umsögn okkar hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum, sem fylgir hér líka í heild.
Frumvarp atvinnuvegaráðherra til laga um lagareldi er að mörgu leyti enn veikara en þau drög sem ráðherra hafði áður kynnt þegar kemur að veigamestu markmiðum frumvarpsins um sjálfbæra uppbyggingu lagareldis.
Að óbreyttu mun þetta frumvarp ekki þjóna markmiðum um að lágmarka skaða opins sjókvíaeldis á umhverfi og lífríki Íslands heldur þvert á móti auka þann skaða og áhættu. Í frumvarpinu er gerð tilraun til að lögfesta fjölmarga fresti og ívilnanir sem draga úr hvata fyrirtækja til að bæta umgengni sína við íslenska náttúru og eldisdýrin.
Íslenski náttúruverndarsjóðurinn skorar á Alþingi að sjá til þess að löggjöf um lagareldi innihaldi skýr ákvæði sem tryggja dýravelferð, standa vörð um friðhelgi landeigenda, kveða á um að óheimilt verði að líta til annarra þátta en heilbrigði villtra laxastofna við útgáfu á áhættumati um erfðablöndun og að laxeldi verði hætt ef þeir sem það stunda geta ekki risið undir þeirri ábyrgð að það skaði ekki villta íslenska laxastofna, lífríki og sjálfbæra auðlindanýtingu annarra atvinnugrein


