Haldi einhver að andstæðingar opins sjókvíaeldis á laxi séu einir um að telja að lagareldisfrumvarp Hönnu Katrínar Friðrikssonar atvinnuvegaráðherra sé sérlega hagfellt sjókvíeldisfyrirtækjunum þá kemur sama sjónarmið fram í úttekt norska greiningarfyrirtækisins Arctic Securities.
Við köllum þessa þjónustu atvinnuvegaráðherra klæðskerasniðna hagsmunagæslu. Orðalag norsku greinendanna er að lagareldisfrumvarpið skapi „kauptækifæri“ í sjókvíaeldisfyrirtækjunum, svo hagfellt sé það iðnaðinum.
Greinendurnir nefna að ýmsir afslættir séu í boði fyrir fyrirtækin. Þeir benda sérstaklega á að svokallað „affallagjald“, sem er leið atvinnuvegaráðherra fyrir fyrirtækin til að kaupa sig fram hjá því að laga stórfelldan velferðarvanda í sjókvíunum, muni ekki hafa áhrif á afkomu fyrirtækjanna við óbreyttar aðstæður: „Arctic Securities expects limited earnings impact from this measure before 2029–2030 under normal conditions.“
Og hvaða aðstæður eru það sem Norðmennirnir kalla „normal conditions“ á Íslandi? Þær eru stórfelldur dauði eldislaxa, yfir 40 prósent af útsettum laxi í sjókvíar undanfarnar eldislotur við Ísland að meðaltali, enn verri þó á Austfjörðum.
Það er sem sagt mat norsku greinandanna að affallagjaldið muni ekki hafa áhrif. Það er sama niðurstaða og við hjá íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum komist að einfaldlega vegna þess að í frumvarpi atvinnuvegaráðherra er gengið svo um hnútana að fyrirtækin munu aldrei þurfa að greiða þetta gjald, sama hversu mikið þau láta drepast af fiski.
Affallagjaldið er pólitísk sýndarmennska í sinni verstu mynd.
Arctic Securities has raised its target price for Icelandic Salmon to NOK 128 (€11.52) per share from NOK 105 (€9.45), reiterating a Buy recommendation after incorporating the proposed Icelandic Aquaculture Law into its estimates.
…
The proposed legislation replaces the current 4% revenue tax with a profitability-based resource tax linked to average industry EBIT per kilogram. Farmers would pay 20% on industry EBIT/kg above EUR 0.85/kg, with a floor of ISK 25/kg (EUR 0.17/kg).
The framework also includes discounts tied to technology adoption. Closed farming systems would receive a 75% discount to the standard rate, while semi-closed systems would receive 60%. Post-smolt incentives offer a 50–70% discount depending on time spent at sea.
A mortality fee of ISK 100 per unexplained fish death is also proposed, applying above a 10% mortality threshold. Arctic Securities expects limited earnings impact from this measure before 2029–2030 under normal conditions.
…