Fréttir
Íslensk stjórnvöld svara ekki upplýsingabeiðni ESA, eftirlitsstofnunar EFTA
ESA, eftirlitsstofnun EFTA , sendi erindi til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, sem fulltrúa íslenskra stjórnvalda, þann 30. janúar, með beiðni um upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi án þess að flokkun á ástandi vatnshlota lægi fyrir áður. Það gengur gengur vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála.
Frestur til að svara beiðninni var gefinn til 2. mars og síðar framlengdur til 17. mars að ósk íslenskra stjórnvalda. Þetta er tíminn sem er liðinn frá því fresturinn rann út:
„Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS“ – Vala Árnadóttir skrifar
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vara við norskri leið í sjávarútvegi – en styðja hana fullum fetum í sjókvíeldi á laxi. Það sem SFS kallar „óhagkvæmt“ þegar þau þurfa að greiða meira, verður allt í einu „fyrirmynd“ þegar þau græða meira. Þetta er meðal þess sem...
Myndband ítalska dagblaðsins la Repubblica
Ítalska dagblaðið la Repubblica birtir stutt myndband þar sem umfjöllun þess um sjókvíaeldisiðnaðinn á Íslandi er tekin saman. Myndbandið má sjá hér.
Umfjöllun ítalska stórblaðsins la Repubblica um framgöngu íslensku sjókvíaeldisfyrirtækjanna
Framferði sjókvíaeldisfyrirtækjanna á Íslandi er til umfjöllunar í ítarlegri fréttaskýringu í ítalska stórblaðinu La Repubblica, en blaðamaður þess var hér á landi fyrr í vor. Meðal annars er fjallað um hversu hroðalega meðferð eldisdýrin þurfa að þola í sjókvíunum....
„Villtur lax eða villt græðgi: Sveitin í skotlínu“ – Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
„Í Noregi, vöggu laxeldisins, hafa afleiðingar óábyrgs eldis orðið svo alvarlegar að stjórnvöld hafa neyðst til þess að loka veiðiám, með gríðarlegu tjóni fyrir dreifðar byggðir sem byggðu afkomu sína á laxveiði. Ákvörðun um lokunina var tekin af norsku...
Árnar þagna frumsýnd í Danmörku
Á morgun verður heimildarmyndin Árnar þagnar frumsýnd í Danmörku, en við hjá IWF stóðum að myndinni með leikstjóranum Óskari Páli Sveinssyni og fórum með hringinn í kringum Ísland síðasta haust. Áður hefur hún verið til sýningar víða í Noregi fyrir fullu húsi og í...
„Norska leiðin“ í sjókvíaeldi er skelfileg fyrir náttúruna og lífríkið
Engin færsla í sögu okkar á Facebook hefur fengið jafn hraustleg viðbrögð. Takk SFS. Það veit enginn hvað þið eruð að tala um þegar þið segið „norska leiðin“ í meðferð á sjávarafurða. Það vita hinsvegar allir að norska leiðin í sjókvíeldi er skelfileg fyrir náttúruna...
Grieg lét undir höfuð leggjast að tilkynna stórt plastmengunarslys í Noregi
Slæleg vinnubrögð norska sjókvíaeldisfyrirtækisins Grieg urðu til þess að fyrirtækið losað 35 milljón plastkúlur í sjó í fyrrasumar. Fyrirtækið tilkynnti ekki atvikið til yfirvalda, einsog því ber að gera, og hefur ekki enn hafið hreinsunarstörf. „Þetta hefur valdið...
Arnarlax greiðir engan tekjuskatt, frekar en fyrri daginn
Jæja, þá er það staðfest. Arnarlax mun ekki greiða tekjuskatt hér á landi þetta árið einsog hefur reyndar verið reglan í þessum rekstri með einni undantekningu á undanförnum átján árum. Félagið var stofnað 2009, síðar tók það yfir Fjarðalax sem hóf rekstur 2007. Á...
SFS flutti inn „norsku leiðina“ í sjókvíaeldi: eyðingu fjarða og villta laxastofnsins fyrir glópagróða
Í tilefni af nýjustu sjónvarpsauglýsingu SFS, þessari þar sem er varað við „norsku leiðinni“ og leikararnir úr Exit þáttunum fara með aðalhlutverkin. Henni verður ekki dreift hér en munum þetta: SFS elskar norsku leiðina í sjókvíaeldinu sem er að eyðileggja firði...
Íllt orðspor íslensks sjókvíaeldis: Umfjöllun í frönskum fjölmiðli
Hér er hlekkur á frétt sem birtist í dag í frönskum fjölmiðli um þá ákvörðun Matvælastofnunar að kæra sjókvíaeldisfyrirtækið Kaldvík til lögreglu vegna brota á dýravelferðarlöggjöf Íslands. Í umfjölluninni er líka farið yfir þann skaða sem þessi starfsemi veldur á...
Umsögn IWF til Skipulagsstofnunar: rangar upplýsingar umhverfismatsskýrslu þarf að leiðrétta
Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum í umsögn okkar til Skipulagsstofnunar óskað eftir að stofnunin fari fram á að Arnarlax leiðrétti rangar upplýsingar í umhverfismatsskýrslu sem fyrirtækið skilaði í febrúar vegna áforma um aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði. Þar...
Yfirlýsing Vesturbyggðar vegna yfirgangs Arnarlax
Yfirgangur Arnarlax gagnvart Vesturbyggð er með ólíkindum en kemur því miður ekki á óvart. Svona hegða þessi stórfyrirtæki sér jafnan. Sveitarfélagið hefur séð sig nauðbeygt til að senda frá sér meðfylgjandi yfirlýsingu vegna orða hins norska forstjóra Arnarlax í...











