Við hjá Íslenska náttúruverndarsjóðnum höfum í umsögn okkar til Skipulagsstofnunar óskað eftir að stofnunin fari fram á að Arnarlax leiðrétti rangar upplýsingar í umhverfismatsskýrslu sem fyrirtækið skilaði í febrúar vegna áforma um aukið sjókvíaeldi í Arnarfirði. Þar er sagt:
„Smitvarnir gegn laxalús s.s. notkun hrognkelsaseiða og lúsapilsa hafa skilað árangri og draga úr nýsmiti eldisfisks.“
Hið rétta er að nýsmit vegna laxalúsar og notkun eiturefna og lyfja hafa stóraukist á undanförnum tveimur árum í Arnarfirði. Þetta má einfaldlega sjá í opinberum gögnum yfir fjölda útgefinna leyfa Matvælastofnunar (MAST).
Þegar matsáætlun Arnarlax (undanfari umhverfismatsskýrslunnar) vegna breytinga á eldi í Arnarfirði var lögð fram í apríl 2023 hafði MAST gefið út þrettán leyfi fyrir notkun lúsaeiturs og lyfja í Arnarfirði frá 2017.
Á næstu tuttugu mánuðum, fyrir árslok 2024, gaf MAST út tólf leyfi til viðbótar fyrir notkun lúsaeiturs og lyfja í sjókvíum í Arnarfirði.
Með öðrum orðum, vandinn um það bil tvöfaldaðist á 20 mánaða tímabili frá því sem hann hafði verið 60 mánuðina þar á undan.
Þetta kallar Arnarlax að „skila árangri“.
Alls eru 25 af 62 staðbundnu leyfum fyrir notkun eiturefna og lyfjafóður, sem MAST hefur gefið út á landinu öllu, vegna lúsasmits í Arnarfirði.
Áform Arnarlax um að auka lífmassa um 4.500 tonn í firðinum þýðir að mögulegum hýslum fyrir lús mun fjölga um hátt í þrjár milljónir. Að óbreyttu áhættumati erfðablöndunar og burðarþolsmati má gera ráð fyrir að fjöldi eldisdýra verði um tólf milljónir alls í Arnarfirði ef áform fyrirtækis ná fram að ganga. Miðað við reynslu undangenginna ár mun sá mikli fjöldi leiða enn meiri hörmungar yfir eldislaxa í sjókvíum og villta laxfiska í firðinum þegar lúsasmit stingur sér þar niður.
Myndin sýnir áverka á eldislaxi af völdum laxalúsar og er skjáskot úr vídeói sem Veiga Grétarsdóttir tók haustið 2023. Arnarlax og Arctic Fish þurftu að farga hátt í tveimur milljón eldislöxum vegna þess hversu illa útleiknir þeir voru eftir að fyrirtækin höfðu gjörsamlega misst tökin á laxalús í sjókvíum sínum.
