Slæleg vinnubrögð norska sjókvíaeldisfyrirtækisins Grieg urðu til þess að fyrirtækið losað 35 milljón plastkúlur í sjó í fyrrasumar. Fyrirtækið tilkynnti ekki atvikið til yfirvalda, einsog því ber að gera, og hefur ekki enn hafið hreinsunarstörf.

„Þetta hefur valdið varanlegum skaða á sjófuglum og öðru lífríki fjarðarins,“ segir fulltrúi norsku Umhverfisstofnunarinnar.

Gríðarleg plastmengun er fylgifiskur sjókvíaeldis á laxi. Nánast allur búnaður í sjó er úr plasti. Flothringirnir eru úr plasti, netapokarnir úr nælonefni og á hverju kvíastæði eru margir kílómetrar af plaströrum.

Hörðum fóðurkögglum er blásið um rörin út í kvíarnar. Þetta virkar einsog sandblástur og eyðir rörunum svo hratt upp að það þarf að skipta um þau á um það bil 18 til 24 mánaða fresti.

Eldislaxarnir eru sem sagt bókstaflega fóðraðir með örplasti sem berst auðvitað líka í miklum mæli í hafið og lífríkið.

e24.no fjallar um plastmengunarslysið. (Áskriftar krafist)