Jæja, þá er það staðfest. Arnarlax mun ekki greiða tekjuskatt hér á landi þetta árið einsog hefur reyndar verið reglan í þessum rekstri með einni undantekningu á undanförnum átján árum.

Félagið var stofnað 2009, síðar tók það yfir Fjarðalax sem hóf rekstur 2007. Á þeim árum sem eru liðin hefur aðeins annað þessara félaga greitt einu sinni tekjuskatt í ríkissjóð.

Mbl.is fjallar um rekstrarniðurstöðu Arnarlax:

Icelandic Salmon AS, móðurfélag Arnarlax ehf., hefur birt ársreikning sinn fyrir árið 2024. Rekstrartekjur félagsins námu 101,4 milljónum evra á árinu, sem jafngildir um 15,2 milljörðum króna. Tap fyrir skatta nam rúmlega 900 þúsund evrum eða um 135 milljónum króna. Rekstrartap fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBIT) var 5,8 milljónir evra, um 870 milljónir króna.